A-Ö Efnisyfirlit

Nýtt átak til að auka skilvirkni og endurskoða starf SÞ

Guterres í ræðustól.
Guterres í ræðustól. Mynd: UN Photo/Evan Schneider

Sameinuðu þjóðirnar

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna kynnti í dag frumkvæði í tilefni af 80 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna til að auka skilvirkni og endurskoða starf þeirra.

Guterres sagði á blaðamannafundi í New York að svokallað SÞ80 frumkvæði (UN80 initiative) hefði þrenn markmið. Í fyrsta lagi að skilgreina aukna skilvirkni og umbætur. Í öðru lagi að fara yfir framkvæmd sífellt fleiri verkefna sem aðildarríkin hefðu falið samtökunum á undanförnum árum. Í þriðja lagi að kanna dýpri breytingar og samþættingu áætlana innan Sameinuðu þjóða kerfisins.

Aðalframkvæmdastjórinn sagði að Sameinuðu þjóðirnar hefðu aldrei verið eins mikigævar og og grunngildi þeirra aldrei verið jafn viðeigandi og nú og á sama tíma hefðu þarfirnar aldreir verið meiri.

Dvínandi fjárveitingar

„En fjárveitingar hafa minnkað á öllum vígstöðvum og slíkt hefur verið raunin um langt skeið,“ sagði Guterres. „Sem dæmi má nefna að undanfarin sjö ár hafa Sameinuðu þjóðirnar glímt við lausafjárskort því öll aðildarríkin hafa ekki greitt framlög sín að fullu og mörg greiða ekki tímanlega.“

Guterres tilkynnti að skipaður hefði verið starfshópur undir stjórn Guy Ryder, háttsetts embættismanns samtakanna, til að leiða SÞ80 frumkvæðið. Hann sagði að hér væri um miklu meira að tefla en tæknileg atriði.

„Fjármál Sameinuðu þjóðanna eru ekki bara tölur á blaði, þarna eru líf og dauði milljóna manna um allan heim í veði,“ sagði Guterres.

„Okkur ber að tryggja að fé sé vel varið á sama tíma og við eflum sameiginleg gildi okkar. Þarfirnar eru miklar og markmiðið skýrt. Við viljum viljum að Sameinuðu þjóðirnar verði enn betri og skilvirkari, skili sínu til fólksins og starfi í takt við tuttugustu og fyrstu öldina.“

Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar 1945. Stofnsáttmáli þeirra gekk í gildu 24.október það ár. 80 ára afmælis þeirra er því minnst á þessu ári.