
26. september 2012 –Barack Obama, forseti Bandaríkjanna sagði á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að ofbeldisverk í kjölfar birtingar myndbands um Íslam, séu árás á sömu gildi og lágu til grundvallar stofnunar Sameinuðu þjóðanna.
“Atburðir síðustu tveggja vikna tala sínu máli um að takast af hreinskilni á við þá spennu sem er á milli Vesturlanda og Arabaheimsins sem þokast í átt til lýðræðis,” sagði Obama í almennu umræðum Allsherjarþingsins sem hófust í gær. Hvatti hann verealdarleiðtoga til að leita friðsamlegra lausna á deilum.
Almenna reglan er sú í almennu umræðunum að þjóðarleiðtogar og oddvitar ríkisstjórna tala fyrstir og síðan utanríkisráðherrar, aðrir ráðherrar og diplómatar í goggunarröð.
Hefð er fyrir því frá því á fyrstu árum Sameinuðu þjóðanna að Brasilíumenn tali fyrstir en Bandaríkjamenn, sem gestgjafar Sameinuðu þjóðanna í New York tali næstir.
Nokkrir leiðtogar Evrópuríkja tóku til máls í á fyrsta degi almennu umræðnanna.
François Hollande, Frakklandsforseti hvatti Sameinuðu þjóðirnar til að grípa inn í ástandið í Malí og styðja hernaðarlega íhlutun Vestur-Afríkuríkja. Þá gagnrýndi hans “aðgerðarleysi” Öryggisráðsins í Sýrlandi og sagði að “sýrlenska stjornin myndi aldrei öðlast sess í samfélagi þjóða. Hún á sér enga framtíð á meðal okkar.”
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar tilkynnti að Spánn sæktist eftir aðild að Öryggisráðinu 2015-2016. Hann sagði að nauðsyn krefði að laga ráðið að áskorunum 21. aldarinnar og gera ráðið skilvirkara. Það þyrfti að endurspegla betur heimsbyggðina og vera ábyrgara gagnvart Allsherjarþinginu.

