30.mars 2016. Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðann segir nauðsynlegt að flytja fleiri flóttamenn frá Sýrlandi frá nágrannaríkjunum til annara staða.
Hann sagði á ráðstefnu í Genf um málefni Sýrlendigna að öll ríki gætu látið meir til sína taka í málefnum flóttamannanna.
„Það besta sem við getum gert fyrir Sýrlendinga er að binda enda á átökin“, sagði aðalframkvæmdastjórinn. „En þar til viðræðurnar bera árangur, blasir ömurlegt ástand við Sýrlendingum og öllum heimshlutanum. Ríki heims verða að mæta þessu með raunhæfum aðgerðum og fjárstuðningi,“ sagði hann á ráðstefnu sem fulltrúar 92 ríkja sóttu, auk alþjóðasamtaka og stofnana Sameinuðu þjóðanna.
Viðfangsefni ráðstefnunnar er brýn þörf á nýjum áætlunum til margra ára um að koma flóttamönnum fyrir í öðrum ríkjum, þar á meðal í ríkjum sem hingað til hafa ekki tekið þátt í slíkum aðgerðum.
Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) boðaði til ráðstefnunnar. Forstjóri hennar Filippo Grandi, lagði áherslu á í ræðu sinni að ekki væri hægt að láta nágrannaríki Sýrlands bera alla ábyrgð, fleiri þyrftu að axla hana.
„Bjóða þarf upp á fleiri leiðir fyrir sýrlenska flóttamenn auk þess að verja fé til þess að létta undir með ríkjum í heimshlutanum,“ sagði Grandi.

Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur gagnrýnt samkomulagið fyrir að brjóta í bága við rétt til hælis, skorts á réttaröryggi, auk efasemda um að staðið verði við að taka á móti flóttamönnum í öllum ESB ríkjum. Flóttamannahjálpin hefur hætt samstarfi við ESB á grísku eyjunum í mótmælaskyni.
Eftit fund með sænska forsætisráðherranum mun aðalframkvæmdastjórnn halda fyrirlestur í ráðhúsi Stokkhólms til minningar um forvera sinn í embætti Svíann Dag Hammarskjöld.
Mynd: Ban ásamt talsmanni sínum Stéphane Dujarric á ráðstefnunni í Genf. © UNHCR/A-L. Lechat

