A-Ö Efnisyfirlit

Öryggisráðið: HIV ógnar friði og öryggi

ryggisr

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna undirstrikaði í dag áframhaldandi nauðsyn á brýnu og samstilltu átaki til að draga úr útbreiðslu HIV og Alnæmis á stríðshrjáðum svæðum jafnt á meðan átökum stendur og að þeim loknum. Ráðið ítrekaði það mikilvæga hlutverk sem friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna gegna í að bregðast við faraldrinum.

Öryggisráðið lýsti yfir að HIV væri “meðal skæðustu ógnana” á vegi þróunar, framfara og stöðugleika samfélaga og krefðist “einstakra og yfirgripsmikilla” andsvara á heimsvísu.  

 ryggisrAlain Juppé, utanríkisráðherra Frakka á fundi Öryggisráðsins 7. júní.

60 milljónir manna hafa smitast á þeim þrjátíu árum sem HIV faraldurinn hefur geysað en hann hefur kostað að minnsta kosti 25 milljónir manna lífið auk þess sem 16 milljónir barna hafa orðið munaðarlaus. 

Þetta var í annað skipti sem HIV og Alnæmi er rætt í Öryggisráðinu. Öryggisráðið lýsti yfir í ályktun 1308 árið 2000 að ef ekki væri brugðist við gæta stöðugleika og öryggi stafað hætta af faraldrinum.  

Í ályktun sem ráðið samþykkti á fundi sínum í gær þar sem áhrif HIV/Alnæmis á alþjóðlegan frið og öryggi var rætt og hlutverk friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna í að bregðast við HIV og Alnæmi, var viðurkennt. “Hvarvetna sem Alnæmi herjar, reyna Sameinuðu þjóðirnar að vera hluti af lausn vandans,” sagði Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi sínu á fundinum.