Gasasvæðið. Þjóðarmorð. Ísrael. Formaður óháðrar rannsóknarnefndar um mannréttindabrot á hernámssvæðum Ísraels í Palestínu segir að Ísraelar hafi gerst sekir um ferns konar þjóðarmorð á Gasa. Í skýrslu til allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna segir einnig að leiðtogar Ísraels hafi hvatt þjóðarmorðs.
Formaðurinn, Navi Pillay, sagði að niðurstöður nefndarinnar væru byggðar á lagalegri greiningu í samræmi við Alþjóðasamninginn um að hindra og refsa fyrir þjóðarmorðs-glæpi.
„Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að Ísraelsríki beri ábyrgð á ferns konar verknaði sem feli í sér þjóðarmorð með það fyrir augum að uppræta Palestínumenn á Gasa,“ sagði Pillay.
„Nefndin komst einnig að þeirri niðurstöðu að forseti, forsætisráðherra og fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísraels hafi hvatt til þjóðarmorðs,“ sagði Navi Pillay, sem er fyrrverandi mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Ekki hægt að vinda ofan af eyðileggingu
Hún sagði að brothætt vopnahlé og lausn gísla og fanga feli sér von, en ekki sé hægt að vinda ofan af eyðileggingunni. „Gasasvæðið er ein rjúkandi rúst þar sem er nánast óbúandi.”
Pillay bætt við að ísraelskir ráðamenn hafi „opinberlega stutt áætlanir um brottrekstur íbúanna, nýjar landnemabyggðir og innlimun svæðisins.”
Þótt slík stefnumið hafi verið lögð til hliðar á meðan vopnahléið sé við lýði, bendi „nýlegar yfirlýsingar ísraelskra embættismanna til að ekki hafi verið hætt við fyrirætlanirnar.”
Þetta var síðasta skýrsla Pillay til þriðju nefndar allsherjarþingsins áður en hún lætur af störfum. Hún hefur stýrt óháðu rannsóknarnefndinni frá því í júlí 2021.
Ísrael – Vesturbakkinn
Nefndin telur að Ísraelsstjórn hafi leynt og ljóst stutt við bakið á ofbeldisfullum landnemum á Vesturbakkanum, þar á meðal í Austur-Jerúslaem frá október 2023. Ætlunin er „bersýnilega að flytja Palestínumenn á brott með valdi, fjölga gyðingabyggðum og innlima stærsta hluta Vesturbakkans.”
„Mig tekur það sárt í síðustu skýrslu minni sem formanni nefndarinnar að segja að fjöðlþjóðakerfinu, sem stofnað var að lokinni Síðari heimsstyrjöldinni, hefur mistekist að koma í veg fyrir þjóðarmorð,” sagði Pillay.
Hvatt til varanlegs vopnahlés
Francesca Albanese óháður sérfræðingur Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (Special Rapporteur on the Palestinian territories) um mannréttindi á hernámssvæðum Ísraels í Palestínu flutti nefnd allsherjarþingsins einnig skýrslu. Hún lagði áherslu á nauðsyn varanlegs vopnahlés á Gasasvæðinu.
Hún hvatti aðildarríki Sameinuðu þjóðanna til að tryggja brotthvarf Ísraelshers og ísraelskra landnema frá öllum herteknum svæðum.
Jafnframt bæri þeim að rjúfa öll hernaðarleg- viðskiptaleg,- og diplómatísk tengsl við Ísrael, „uns ríkið bindur enda á og bætir fyrir þjóðarmorð, ólöglegt hernám og aðskilnaðarstefnu.“ Einnig bæri að rannsaka og sækja til saka eftir atvikum þá sem bæru ábyrgð á meintum glæpum.
Sérstaki mannréttindasérfræðingurinn og aðrir slíkir, sem skipaðir hafa verið í tengslum við svokallaða sérstaka málsmeðferð af Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, eru ekki starfsmenn samtakanna og eru óháðir ríkisstjórnum og samtökum. Þeir eru ólaunaðr.
