12.febrúar 2014. Ójöfn kynjahlutföll í útvarpi eru í brennidepli á alþjóðlega útvarpsdeginum sem er haldinn í dag.
Útvarp er sá fjölmiðill sem nær til flestra í heiminum. Útvarpið er öflugur samskiptamiðill sem nær til allra kima og afskekktra samfélaga. Útvarpið hefur möguleika til að leyfa þátttöku allra í opinberri umræðu, óháð lestrarkunnáttu, kyni, aldri eða veraldlegum eigum. Þetta er ódýr miðill sem nær til fólks óháð menntun og leikur á mörgum stöðum stórt hlutverk í almannavörnum og til að koma boðum á milli þegar neyðarástand ríkir.

UNESCO hefur veg og vanda af deginum og í ár er athyglinni beint að stöðu kvenna í útvarpi. Aðeins 22% frétta í útvarpi eru um konur, og aðeins 15% sérfræðinga sem rætt er við í fréttum eru kvenkyns. Þá eru konur aðeins 24% þeirra sem rætt er við, heyrast í eða eru sýndir í fjölmiðlum almennt. “
”Það eru meir en sjötíu sjónvarpsstöðvar reknar hér en fjöldi kvenna í æðstu stöðum er nánast núll. Örfáar eru við miðbik í goggunarröð stjórnenda en flestar eru lágt settar,” segir Jaffery, sem vinnur fyrir BBC í Pakistan.
Í ávarpi í tilefni dagsins segir Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna að jafnrétti kynjanna sé langt á eftir á öldum ljósvakans. “Ég hvet útvarpsstöðvar til að vera opnari með því að viðurkenna konur til jafns við karla jafnt í starfsliði sínu sem á meðal viðmælenda. Útvarpið getur leikið stórt hlutverk í að uppræta staðalímyndir og ójafna stöðu í dagskrárgerð,” segir Ban Ki-moon.
Hlustið á UN Radio hér
Ávörp á Alþjóðlega útvarpsdaginn hér

