A-Ö Efnisyfirlit

Öryggisráðið kallað saman til fundar um Gasa

Unga kona á gangi við rústir heimilis síns á Gasa. Mynd: UN Women/Suleiman Hajji
Unga kona á gangi við rústir heimilis síns á Gasa. Mynd: UN Women/Suleiman Hajji

Gasa. Gasasvæðið.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur verið boðað til fundar vegna ástandsins í Mið-Austurlöndum. Ísraelar gerðu mannskæðar loftárásir á Gasavæðið í nótt og tveggja vikna herkví er farin að bitna á íbúunum. Rúmlega 400 manns létust í árásum Ísraelsmanna.

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagðist vera „felmtri sleginn“ yfir loftárásum Ísraela að sögn talsmanns hans. „Hann hvetur eindregið til að vopnahléið sé virt, að mannúðaraðstoð komist óhindrað til skila að nýju og að öllum gíslum verði sleppt skilyrðislaust.”

Gasabúar við matvæladreifingarstöð í Gasaborg í febrúar. Mynd:   © WHO
Gasabúar við matvæladreifingarstöð í Gasaborg í febrúar. Mynd:   © WHO

Hryllingur

Hadi Muhannad samræmandi mannúðarmála á herteknu svæðunum í Palestínu sagði í yfirlýsingu að koma yrði á vopnahléi að nýju tafarlaust. „Íbúar Gasasvæðisins hafa mátt þola ótrúlegar þjáningar,“ skrifaði Muhannad. „Stöðva ber átökin, leyfa varanlega mannnúðaraðstoð, leysa gísla úr haldi og endurreisa lífsviðurværi fólks.“

Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna sagðist fyllast „hryllingi” yfir loft- og stórskotaliðsárásum Ísraels á Gasa. „Ísraelar hafa gripið til hervalds á nýju. Það mun einungis kalla enn meiri þjáningar yfir sárþjáða Palestínumenn sem búa við hörmulegar aðstæður. Þessari martröð verður að ljúka, leysa ber gísla tafar- og skilyrðislaust úr haldi.“