A-Ö Efnisyfirlit

Skálmöld fjarri sviðsljósi

CAF

14.ágúst 2013. Mannúðarstofnanir Sameinuðu þjóðanna hafa lýst yfir þungum áhyggjum af ástandinu í Mið-Afríkulýðveldinu

en hundruð þúsunda manna eiga í vök að verjast vegna lögleysu og óöryggis og lifa við stöðugan ótta.

 

Adrian Edwards, talsmaður Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) segir að fólki væri enn “stökkt á flótta” jafnt innan sem út fyrir landamæri lýðveldisins.

“Innan Mið-Afríkulýðveldisins eru nú 206 þúsund manns á vergangi,” sagði Edwards á blaðamannafundi í Genf í gær.

Um 63 þúsund manns hafa flúið til nágrannaríkja frá því upp úr sauð í desember á síðasta ári, að sögn UNHCR. 40 þúsund hafa flúið til Lýðveldisins Kongó og 13 þúsund til Tsjad.

Ofbeldisaldar reið yfir í desember 2012 þegar uppreisnarmenn Séléka bandalagsins skáru upp herör. Friðarsamningar tókust í janúar en uppresinarmenn náðu höfuðborginni Bangui á sitt vald í mars og stökktu Bozizé forseta á flótta.

Mál lýðveldisins er á dagskrá Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í dag, 14.ágúst. .

Tarik Jasarevic, talsmaður Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar segir að 70% íbúanna skorti aðgang að heilsugæslu.

Mannúðarstofnanir Sameinuðu þjóðanna og samstarfsaðilar þeirra eiga í erfiðleikium með að fjármagna aðstoð, að sögn Samræmingarskrifstofu Mannúðaraðstoðar hjá Sameinuðu þjóðunum. Óskað var eftir 195 Bandaríkjadala mannúðaraðstoð við Mið-Afríkulýðveldið en aðeins 32% eða 62 milljónir hafa hingað til skilað sér. Þar af voru 23% afgangur frá síðasta ári.

Ivan Šimonović, aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna á sviði mannréttinda heimsótti landið nýverið og lýsti þungum áhyggjum í kjölfarið. Í grein sem hann skrifaði benti hann á að landið væri “utan ratsjársviðs fjölmiðla og alþjóða samfélagsins”; tala fallinna væri ekki jafn ógnvænleg og í Sýrlandi og landið ekki jafn nærri Evrópu og Malí.

Hann benti á að óþjóðalýður færði sér valdatómið í nyt.

“Í þessu löglausa hjarta Afríku sem er stærra en Frakkland og Belgía til samans, hefur hinn illræmdi Andspyrnuher Drottins fundið sér griðastað til vígaferla og herkvaðningar. Uppreisnarmenn frá Tsjad og Darfur auk íslamskra öfgamanna frá Malí geta fetað í fótsporin,” skrifaði Šimonović.

Mynd: Flóttafólk frá Mið-Afríkulýðveldinu. UNHCR/H. Caux