25.nóvember 2014. Ofbeldi gegn konum þekkir engin landamæri, stéttaskiptingu né menningarmörk. Og ofbeldi er ekki alltaf líkamlegt. Um heim allan mun þriðja hver kona sæta andlegu-, líkamlegu- eða kynferðislegu ofbeldi einhverju sinni á æfinni; allt frá áreitni á vinnustað og einelti á netinu til heimilisofbeldis og nauðgunar.

En sú ógn sem sumum unglingum stafar af hótunum á netinu eru aðeins toppurinn á ísjakanum. Undir “hefðbundið” ofbeldi flokkast til dæmis heimilisofbeldi og kynferðisleg áreitni sem eru síður en svo á undanhaldi. Kynferðislegt og kynbundið ofbeldi er grófasta birtingarmynd ójafnréttis sem konur og stúlkur sæta um allan heim.
“Konur og stúlkur sæta ofbeldi í öllum ríkjum og öllum hverfum, en oft eru þessir glæpir ekki tilkynntir og leynd hvílir yfir þeim,” segir Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi í tilefni dagsins. “Við verðum að rjúfa þögnina.”
Öll berum við ábyrgð á því að binda enda á ofbeldi gegn konum og stúlkum. Byrjunin er að skora á hólm þá mismunun sem leyfir ofbeldi að þrífast.
16 dagar fyrir betri heim

Á árum áður voru kvenréttindi álitin einkamál kvenna en sífellt fleiri karlar og drengir taka upp hanskann í baráttunni fyrir valdeflingu kvenna.
Fyrir tveimur mánuðum hleypti ég af stokkunum herferðinni HannFyrirHana , þar sem sett hvatt er til alheimssamstöðu til stuðnings jafnréttis kynjanna, þar sem annar helmingur mannkynsins styður hinn helminginn, í allra þágu,“ segir Ban Ki-moon í ávarpi sínu. Meir en 200 þúsund karlmenn hafa gengið til liðs við hreyfinguna.
Frá 25.nóvember, Alþjóðadagsins gegn kynbundnu ofbeldi til 10.desember, Mannréttindagsins, eru 16 dagar virkni gegn kynbundnu ofbeldi.
Örugg borg

Í tilkynningu frá UN Women segir: „Við skorum á ykkur að sýna samstöðu gegn kynbundnu ofbeldi og taka þátt í að skapa ógleymanlega stund með þátttöku í einstökum viðburði.
Lokaathöfn átaksins „Örugg borg“ verður verkið Skínalda, eftir listamanninn Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur. Viðburðurinn verður haldinn 25. nóvember á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi þar sem samspil ljóss, tóna og fólks verður í aðalhlutverki.
Í krafti fjöldans munum við búa til ljósaspíral þar sem við sendum frá okkur skilaboð út í samfélagið og heim allan um að breytingar séu mögulegar. Kórar syngja undir stjórn Hildigunnar Einarsdóttur og Lilju Daggar Gunnarsdóttur.
Allir eru hvattir til að koma með ljósgjafa, t.d. vasaljós, snjallsíma eða kerti svo ljósið verði sem skærast. Flutningstími verksins er 10 mínútur og verður boðið upp á kakó að því loknu. Vertu með! Gangið til liðs við hreyfinguna – rjúfum þögnina!
Aðrir skyldir tenglar:
• UN Women
• Öruggar borgir www.oruggborg.is
• Facebook:
https://www.facebook.com/events/1503927063216378/?source=1
https://www.facebook.com/SayNO.UNiTE
Myndirnar eru úr auglýsingasamkeppni UNRIC um efnið „Segjum nei við ofbeldi gegn konum“ sem haldin var 2011.


