Khalilur Rahman, utanríkisráðherra Bangladess, var kjörinn forseti 81. þings Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna á þriðjudag. Sigraði hann Andreas Kakouris frá Kýpur í harðri kosningabaráttu. Hann mun stýra þinginu á mikilvægu ári sem einkennist af vaxandi alþjóðlegum kreppum, umbótastarfi innan Sameinuðu þjóðanna og leiðtogaskiptum.
Í leynilegri atkvæðagreiðslu hlaut Rahman 99 atkvæði á móti 91 atkvæði Kakouris. Alls voru greidd 190 atkvæði og sat enginn hjá né voru atkvæði ógild. Fimm svæðisbundnir hópar inna Sameinuðu þjóðanna skiptast yfirleitt á að kjósa forseta þingins. Rahman mun gegna embættinu í eitt ár frá og með 8. september.
Eftirmaður aðalframkvæmdastjórans Antónios Guterres verður kosinn í forsetatíð hans. Kjörtímabili Guterres lýkur 31. desember 2026. Rahman hefur yfir fjögurra áratuga reynslu af erindrekstri og fjölþjóðlegu samstarfi. Hann hefur verið utanríkisráðherra Bangladess síðan í febrúar en starfaði áður sem þjóðaröryggisráðgjafi og sérstakur erindreki í málefnum Róhingja.
„Með auðmýkt og virðingu“
Hann hóf störf í utanríkisþjónustu Bangladess árið 1979. Hann hefur einnig gegnt háttsettum stöðum hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og Genf.
Þegar ljóst var að Rahman hefði náð kjöri sagðist hann taka að sér hlutverkið „með auðmýkt og virðingu“ á tímum þegar traust á alþjóðakerfinu væri undir álagi.
„Sameinuðu þjóðirnar hefja níunda áratug sinn á tímum þegar sótt er að samtökunum á mörgum vígstöðvum,“ sagði hann við aðildarríkin. „Samanlagt grafa þessar áskoranir undan trausti almennings og trú á getu samtakanna til að standa við loforð sín.“
Heimur undir álagi
Kosningin á sér stað nú, að sögn núverandi forseta Allsherjarþingsins, Annalena Baerbock, á einstaklega erfiðu augnabliki fyrir fjölþjóðlegan erindrekstur. Í ávarpi til aðildarríkjanna eftir atkvæðagreiðsluna sagði Baerbock að SÞ stæðu frammi fyrir „ekki aðeins mótvindi, heldur gríðarlegum þrýstingi,“ þar sem sífellt erfiðara væri að ná samstöðu og vörn Sáttmála Sameinuðu þjóðanna væri orðin „dagleg nauðsyn“.
„Hlutverk forseta Allsherjarþingsins er ekki lengur eingöngu verklagslegt,“ sagði hún.
Aðalframkvæmdastjórinn António Guterres tók undir þessar áhyggjur og lýsti heimi sem glímir við „átök, sundrungu, vaxandi ójöfnuð og loftslagsóreiðu.“
Sex forgangsatriði fyrir 81. þingið
Rahman sagði að forsetatíð sín myndi einbeita sér að sex víðtækum forgangsatriðum: friði og öryggi; að flýta fyrir framförum í heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun; aðgerðum í loftslagsmálum og umhverfisvernd; mannréttindum; stjórnun nýrrar tækni, þar á meðal gervigreindar, og umbótum á samtökunum.
Með vísan til reynslu Bangladess af friðargæslu hét hann því að styðja við fyrirbyggjandi erindrekstur, friðaruppbyggingu og vernd almennra borgara.
„Að endurheimta traust“
Yfirskrift Rahmans fyrir þingið er „Að endurheimta traust, stýra umbreytingum: Sameinaðar þjóðir sem skila árangri fyrir alla.“
„Sem forseti ykkar mun ég helga mig því að endurbyggja traust, hlúa að samstöðu og skapa svigrúm fyrir sanngjarnar samningaviðræður sem munu leiða til niðurstaðna fyrir alla sem allir geta tekið undir,“ sagði hann.
Hann hét því einnig að halda Sáttmála Sameinuðu þjóðanna í heiðri, viðhalda landfræðilegu og kynjajafnvægi innan skrifstofu sinnar og styðja við þarfir smærri sendinefnda.
Heimsþing
Allsherjarþingið sameinar öll 193 aðildarríkin, þar sem hvert ríki hefur eitt atkvæði. 81. þingið verður sett 8. september og leiðtogar heims koma saman tveimur vikum síðar til árlegrar allsherjarumræðu í höfuðstöðvum samtakanna í New York.
