Réttlætis og svara krafist eftir dráp hjálparstarfsmanna

Gasasvæðið.Mannúðarstarfsmenn.

Tom Fletcher mannúðarmálastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur krafist „réttlætis og svara” eftir að Ísraelsher drap átta palestínska sjúkraliða, sex björgunarsveitamenn og tvo starfsmenn Sameinuðu þjóðanna í árás á Gasasvæðinu. 

Allir voru mannúðarstarfsmennirnir klæddir einkennnisfötum, svo ekki hefði átt að fara á milli mála hverjir þeir væru. Þeir störfuðu fyrir Palestínska Rauða hálfmánann, palestínskar björgunarsveitir og Palestínu-flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Þeir höfðu sinnt útkalli og ætluðu að sækja slasað fólk 23.mars á Rafah-svæðinu í suðurhluta Gasasvæðisins. Þeir urðu fyrir skothríð Ísraelshers, að sögn æðsta yfirmanns Samræmingarskrifstofu mannnúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum á svæðinu (OCHA)

Jonathan Whittall sagði að þann dag hafi fimm sjúkrabifreiðar, slökkviliðsbíll og vel merktur bíll Sameinuðu þjóðanna orðið fyrir skothríð Ísraelshers. Eftir það féllu öll samskipti niður.

Aðgangur hindraður

„Einn eftirlifenda skýrði frá því að ísraelskir hermenn hefði drepið tveggja manna áhöfn sjúkrabílsins, sem flutti hann. Starfsmönnum OCHA var meinað um að koma á staðinn í fimm daga,“ sagði Whittall.

Þegar starfsmenn Sameinuðu þjóðanna komust loks á vettvang sáu þeir hundruð óbreytta borgara á flótta undan skothríð Ísraelsmanna.

„Við sáum konu sem var skotin í hnakkann. Þegar ungur maður reyndi að ná til hennar var hann líka skotinn. Við gátum loks sótt lík hennar á bifreið Sameinuðu þjóðanna,“ bætti hann við.

Skelfileg aðkoma

Hann  sagði að þegar hjálparstarfsmenn komust loks á vettvang á sunnudag hafi blasaði við þeim „skelfileg aðkoma: sjúkrabílar, bíll Sameinuðu þjóðanna og slökkvibíll sundurkramdir og að hluta til brunnir.”

Palestínski Rauði hálfmáninn, sem er heimshreyfingar Rauða krossins og Rauð hálfmánans lýsti skelfingu sinni yfir dauðsföllunum og bættu við að enn eins starfsmanns, væri saknað.

„Þessir dugmiklu sjúkraflutningamenn höfðu komið særðu fólki til hjálpar,“ sagði Jagan Chapagain framkvæmdastjóri IFRC, heimssambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans. „Tákn samtakanna hefði átt að vera þeim vörn, og sjúkrabifreiðirnar voru greinilega merktar. Þeir hefðu átt að snúa aftur til fjölskyldna seinan, en gerðu það ekki.”

408 hjálparstarfsmenn hafa verið drepnir, þar af 280 starfsmenn UNRWA, frá því stríðið blossaði upp á Gasasvæðinu fyrir hálfu öðru ári.

Fréttir