Alþjóðlegur baráttudagur gegn hómófóbíu, transfóbíu og bífóbíu. Samkynheigð. António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að þrátt fyrir að gríðarlegar framfarir hafi orðið í baráttunni fyrir jöfnum réttindum hinsegin fólks á síðustu áratugum, sé nú bakslag í þeim málum.
„Í fyrsta sinn í mörg ár hefur þeim löndum fjölgað sem gera kynferðisleg samskipti samkynhneigðra refsiverð,“ sagði Guterres í skilaboðum á alþjóðlegum baráttudegi gegn hómófóbíu, transfóbíu og bífóbíu.
Guterres sagði að þegar réttindi væru undir árás væri hinsegin fólk oft meðal þeirra fyrstu sem liðu fyrir það – gert að blórabögglum og útsett fyrir aukinni hættu á öryggi sínu, heilsu og velferð.
Samkynhneigð er ólögleg í um 65 ríkjum í heiminum, eða þriðjungi aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna, að sögn samtakanna.
Senegal tvöfaldaði refsingu
Dæmi um bakslagið er samþykkt nýrra laga á senegalska þinginu fyrr á þessu ári sem tvöfalda hámarksfangelsisrefsingu fyrir kynferðisleg samskipti samkynhneigðra í 10 ár. Lögin refsa einnig fyrir svokallaða „kynningu, stuðning eða fjármögnun“ á samkynhneigð, tvíkynhneigð og transkynhneigð. „Þetta er mikið áhyggjuefni,“ sagði Volker Türk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, í yfirlýsingu.
„Þetta gengur í berhögg við hin helgu mannréttindi sem við öll njótum: réttinn til virðingar, reisnar, friðhelgi einkalífs, jafnréttis og tjáningar-, félaga- og friðsamlegra fundarfrelsis.“
Brot á mannréttidayfirlýsingunni
Türk hvatti forseta Senegal til að staðfesta ekki lögin. Hann benti á að þessi réttindi væru tryggð í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, sem og mannréttindasáttmálum sem Senegal er aðili að. Þrátt fyrir þessa áskorun undirritaði Bassirou Diomaye Faye, forseti Senegal, lögin þann 30. mars 2026.
„Þessi lög gera fólk berskjaldað fyrir hatursglæpum, misnotkun, handahófskenndum handtökum, fjárkúgun og víðtækri mismunun í menntun, heilbrigðisþjónustu, atvinnu og húsnæði,“ sagði Türk. „Þar að auki takmarka þau lögmætt starf mannréttindabaráttufólks, fjölmiðla og tjáningarfrelsi allra í Senegal.“
Ætti aldrei að vera glæpur að vera sá sem maður er
Þema alþjóðlega dagsins að þessu sinni „Í hjarta lýðræðisins“, er kröftug áminning um að sérhver einstaklingur verður að geta lifað án ótta og tekið jafnan þátt í samfélaginu.
„Á alþjóðlegum baráttudegi gegn hómófóbíu, bífóbíu og transfóbíu staðfestum við einfaldan sannleika: það ætti aldrei að vera glæpur að vera sá sem þú ert,“ sagði Guterres í yfirlýsingu sinni.
17. maí var stofnaður árið 2004 sem alþjóðlegur baráttudagur gegn hómófóbíu, transfóbíu og bífóbíu til viðurkenningar á ákvörðun Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar um að aflétta flokkun samkynhneigðar sem geðröskunar þann 17. maí 1990.
Sjá einnig hér.
