6.febrúar 2015. Mannréttindasérfræðngur á vegum Sameinuðu þjóðanna skorar á Evrópusambandið að taka forystu um að taka á móti milljón flóttamönnum frá Sýrlandi og Erítreu á næstu fimm árum.
Í tilkynningu að lokinni fjögurra daga heimsókn til Brussel, sagði erindreki Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi farandfólks, François Crépeau, að margir þeirra sem reyndu að brjóta sér leið yfir Miðjarðarhafið væru „bersýnilega flóttamenn, eins og Sýrlendingar og Erítreumenn. Evrópusambandið getur ekki ætlast til að Sýrlendingar búi í flóttamannabúðum eða bæjum í Líbanon og Tyrklandi endalaust.”
„Þetta eru ekki aðeins hælistleitendur, þeir eru flóttamenn eins og Víetnamarnir sem flúðu á bátum á níunda áratugnum. Svíar hafa sagt þetta og Þjóðverjar viðurkennt í verki. Af hverju ættu þessi flóttamenn að þurfa að borga þúsundir evra og hætta lífi sínu til að tryggja framtíð barna sinna?” sagði Crépeau á blaðamannafundi í Brussel.
Hann hvatti aðildarríki Evrópusamandið og önnur sambærileg ríki á borð við Bandaríkin, Kanada, Ástralíu og Nýja Sjáland til að semja áætlun um að taka við flóttamönnum; rétt eins og þegar„Bátafólkið” frá Víetnam leitaði hælis á níunda áratug síðustu aldar.
„Við ættum að koma upp meiri hátta áætlun um að koma Sýrlendingum og Erítreubúum fyrir. Ég hef lagt til að Evrópusambandið og bandaríki þess heiti því að taka við einni milljón Sýrlendinga og Erítreumanna á næstu fimm árum.”
150 þúsund farandfólk og hælisleitendur komu sjóleiðina til Evrópu árið 2014, en 70 þúsund árið á undan.
„Þjóðernissinnaðir lýðskrumarar hvetja til að loka landamærum, en slíkar tilraunir eru dæmdar til að misheppnast,” segir Crépeau. “Farandfólk mun halda áfram að koma þrátt fyrir tilraunir til að stöðva það, en það mun hafa hræðilegan kost í för með sér ef ekki er boðið upp á neinn valkost í staðinn.”

