A-Ö Efnisyfirlit

Rio + 20: Ungir og gamlir í hnattrænum viðræðum

elders2

elders2

9. maí 2012. The Elders, sjálfstæður hópur þjóðarleiðtoga undir forystu Desmond Tutu, biskups hvetur til „djarfra aðgerða“ þegar veraldarleiðtogar hittast í Brasilíu í júní í sumar á Rio + 20 ráðstefnunni um Sjálfbæra þróun.

Þjóðarleiðtogarnir í the Elders tóku þátt í pallborðsumræðu I Osló í Noregi 9. maí ásamt upprennandi leiðtogum víða að en þetta er liður í herferð um „velferð komandi kynslóða.“

Þrír af „öldungunum“, Tutu, erkibiskup, Mary Robinson,fyrrverandi forseti Írlands og Gro Harlem Brundltand, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs ræddu um þær áskoranir sem leiðtogarnir standa frammi fyrir I Rio á opnum fundi I Literaturhuset í Osló ásamt yngri leiðtogunum Esther Agbarakwe (27) frá Nígeríu og Marvin Nala (23) frá Kína.

The Elders hafa að undanförnu tekið þátt í umræðum á netinu um framtíð plánetunnar jarðar ásamt ungleiðtogum um víða veröld en þær umræður ná hámarki með opinberum umræðum „Elders“ og „Youngers“ ungra og gamalla leiðtoga á sjálfri Rio + 20 ráðstefnunni.

Mary Robinson harmaði hversu lítt brennandi málefni Rio ráðstefnunnar væru í umræðunni einmitt nú en hún sagði það af hluta til skýrast af því að fremur væri fjallað um sæta ísbirni en fólkið sjálft.

„Fólkið verður að vera í fyrirrúmi og sú staðreynd að vandamálin eru hér og nú. Fólk á um sárt að binda af völdum loftslagsbreytinga og á erffiðara með að brauðfæða sig og sína í ófyrirsjáanlegum heimi þar sem árstíðirnar eru horfnar,“ sagði Robinson.

„Öldungarnir“ þrír hvöttu allir ungleiðtoga til að beita stjórnmálamenn þrýstingi enda horfðu þeir yfirleitt bara tvö til þrjú ár fram í tímann. „Við þurfum á eldmóði æskunnar, lífsgleði og jákvæðri orku að halda til þess að þrýsta á leiðtogana um að taka ákvarðanir“, sagði Robinson.

Spyrjandinn, norka sjónvarpskonan Siri Lill Mannes bað þremenningana um að gefa ungleiðtogum ráð sem rúmuðust í einni setningu.

Brundtland svaraði: „Verið þið sjálf og horfið til langs tíma.“

Desmond Tutu sagði : „Sýnið kærleika.“

Og Robinsson botnaði:“ Verið þið sjálf og hugsið til langs tíma, sýnið kærleika og fylkið liði!.“