Evrópusambandið. Niðurskurður.
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna situr hluta leiðtogafundar Evrópusambandsríkjanna síðar í vikunni í Brussel. Í lok síðustu viku hitti hann flóttamenn af Rohingja kyni í flóttamannabúðum í Cox´s Bazar í Bangladesh.
Aðalframkvæmdastjórinn hittir leiðtoga ESB ríkjanna oftast einu sinni á ári í marsmánuði. Að þessu sinni fer fundurinn fram í skugga niðurskurðar helstu fjárveitenda á borð við Bandaríkin og nokkur Evrópuríki. Þetta kemur verulega niður á hjálparstarfi Sameinuðu þjóðanna.
Fundir með ESB leiðtogum
Guterres hittir Ursula von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar og António Costa formann ráðherraráðsins og Roberta Metsola forseta Evrópuþingsins á miðvikudag.
Fimmtudag situr hann hádegisverðarfund í byrjun leiðtogafundar Evrópusambandsríkjanna. Föstudag tekur hann svo á móti heiðursdoktorsnafnbót fyrir hönd Sameinuðu þjóðanna frá Leuven/Louvain háskólum í Belgíu.
Hörmulegar afleiðingar niðurskurðar
Guterres ávarpaði flóttamenn af Rohingjakyni í flóttamannabúðum í Cox´s Bazar. Hann hét því að gera allt sem í hans valdi stæði til að koma í veg fyrir enn frekari þjáningar flóttamannanna nú þegar miklar skerðingar blasa við af völdum niðurskurðar.
Guterres sagði að afleiðingarnar kæmu í ljós í Cox´s Bazar fyrr en víðast hvar annars staðar. Hann varaði við því að niðurskurður hefði hörmulegar afleiðingar í för með sér ef ekki yrði gripið til aðgerða.
Vannært barn fær næringu í Cox’s Bazar. Mynd: © UNICEF/Ilvy Njiokiktjien
„Hætta er á að við þurfum að skera niður matarskammta í þessum flóttamannabúðum,“ sagði hann. „Það væru skefileg niðurstaða, sem við getum ekki sætt okkur við því fólk mun þjást og jafnvel deyja.“
Rohingjar eru flestir múslimar og eru minnihlutahópur í Myanamar nærri landamærum Bangladesh. Í ágúst 2017 náðu ofsóknir gegn þeim hámarki og flúði hátt í ein milljón manna til nágrannaríkisins Bangladesh í kjölfarið.
