Sameinuðu þjóðirnar heiðruðu friðargæsluliða sína og þá sem látið hafa líf sitt í þágu friðar á alþjóðlegum degi friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna 29. maí.Alls starfa 120 þúsund manns hermenn, lögreglumenn og óbreyttir borgarar við 15 friðargæslusveitir Sameinuðu þjóðanna um allan heim og hafa aldrei verið fleiri.

Friðargæsliðar UNMIL í Monróvíu í Líberíu fylkja liði á alþjóðlega deginum. SÞ-mynd: Staton Winter.
Skuggi hvíldi á deginum að þessu sinni. Sjö starfsmenn friðargæslunnar voru myrtir í árás á stöð Sameinuðu þjóðanna í Afganistan í apríl og nokkrum dögum síðar létust 32, þar af fjölmargir SÞ-liðar þegar flugvél í þjónustu friðargæslunnar fórst í Kongó. Þessi atvik komu í kjölfar nokkura banaslysa um víða veröld og bættust ofan á missi 173 friðargæsluliða á síðasta ári í náttúruhamförum, ofbeldisverkum, slysum og af völdum sjúkdóma. Þar af létust meir en hundrað í jarðskjálftanum á Haítí í janúar 2010.
“Fórnarlömbin störfuðu hjá hinum ýmsu stofnunum Sameinuðu þjóðanna, hermenn, óbreyttir borgarar og lögregluþjónar, sjálfboðaliðar og heimamenn, “sagði Asha-Rose Migiro, varaframkvæmdastjóri SÞ er hún minntist hinna látnu með því að leggja blómsveig að minnisvarða um fallna friðargæsluliða í aðalstöðvum SÞ í New York. “Þau gegndu ólíkum störfum og voru af ólíku þjóðerni en áttu það öll sameiginlegt að trúa á inntak stofnskrár Sameinuðu þjóðanna. Þau lögð líf sitt að veði til þess að aðrir gætu notið öruggari og bjartari framtíðar.”
