A-Ö Efnisyfirlit

Samstarfsaðili SÞ fær umhverfisverðlaun

Juul

31.október 2013. Selina Juul hlýtur Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2013 fyrir baráttu sína gegn sóun matvæla á vettvangi neytendahreyfingarinnar „Stop Spild Af Mad“.

Juul tók við verðlaununum við athöfn í Osló í gærkvöldi í tengslum við þing Norðurlandaráðs.

Selina Juul er samstarfsaðili herferðar Sameinuðu þjóðanna Think.Eat.Save í Danmörku og átti sæti í dómnefnd auglýsingasamkeppni UNRIC um sóun matvæla sem lauk fyrr í þessum mánuði.

Selina Juul, handhafi Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs, er stofnandi neytendahreyfingarinnar „Stop Spild Af Mad“, sem er stærsta sjálfboðahreyfing Danmerkur sem berst gegn matarsóun.

„Framlag hennar er ómetanlegt,“ segir í rökstuðningi Norðurlandaráðs.

Ákveðið hafði verið að Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2013 yrðu veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem þróað hefði vöru, uppfinningu eða með öðrum hætti aukið skilvirka nýtingu auðlinda og þar með stuðlað að því að draga úr neikvæðum áhrifum mannsins á náttúruna.

Selinu Juul hefur tekist að koma af stað umræðu um matarsóun, ekki aðeins í heimalandi sínu Danmörku, heldur líka á Norðurlöndum sem heild,  og á vettvangi Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna. Juul vinnur í sjálfboðavinnu sem talsmaður hreyfingarinnar sem hún stofnaði sjálf árið 2008.

Þrautseigja Selinu Juul og annarra sem vakið hafa athygli á þessum vanda hefur leitt til þess að dregið hefur úr sóun á mat í Danmörku. „Með hugmyndaflugi, eldmóði og vinnusemi hefur Selinu Juul tekist að vekja athygli á matarsóun og þar með stuðlað að betri nýtingu auðlinda og dregið úr neikvæðum áhrifum manna á náttúruna,“ segir í rökstuðningi dómnefndarinnar.

Auk heiðursins falla 7.7 milljónir íslenskra króna í skaut Selinu Juul.

Nánari upplýsingar um verðlaun Norðurlandaráðs og „Stop Spild Af Mad

Ljósmyndari
Magnus Froderberg/norden.org