A-Ö Efnisyfirlit

Serbi forseti Allsherjarþingsins

Serb president of GA

11.júní 2012. Serbi forseti Allsherjarþingsins Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur kosið Vuk Jeremic, forseta komandi þings, hins sextugasta og sjöunda í röðinni. Jeremic fékk 99 atkvæði en Dalius Cekuolis sendiherra frá Litháen fékk 85 atkvæði, fimm skiluðu auðu og eitt ríki var fjarverandi. “Við erum lítið þróunarland sem erum hvorki í hernaðar- né pólitísku bandalagi,” sagði Jeremic á Allsherjarþinginu eftir að hann hafði náð kjöri. “Það er því mikill heiður að hafa uppskorið traust svo margra ríkja alls staðar að til þess að sitja í forsætia helstu stofnunar Sameinuðu þjóðanna.” Nýkjörni forsetinn lagði til að þema umræðu hátt settra leiðtoga á 67. þinginu yrði “aðlögun eða lausn alþjóðlegra deilna eða ástands með friðsamlegum hætti.” Hundrað níutíu og þrjú ríki eiga sæti á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna en þar eru til umræðu öll mál sem heyra undir sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Allsherjarþingið situr ævinlega frá september til desember á hverju ári og síðan eftir því sem þurfa þykir