A-Ö Efnisyfirlit

Sérfræðingur SÞ hvetur Ísland til aðgerða gegn hatursorðræðu

Bækur til sölu.
Bækur til sölu. Mynd: Yadid Levy / Norden.org

Óháður sérfræðingur Sameinuðu þjóðanna skorar á Ísland að brúa það bil sem þarf til að tryggja vernd farenda, fólks með fötlun og transfólks.

Mannréttindasérfræðingurinn George Katrougalos kallar eftir ýmsum aðgerðum í þágu farenda að lokinni vettvangsathugun á Íslandi. Þar á meðal fettir hann fingur út í hvernig staðið er að sameiningu fjölskyldna og beitingu einangrunar fyrir farendur sem hafa verið sviptir frelsi í aðdraganda dómsmeðferðar.

Mótmæli í Reykjavík.
Mótmæli í Reykjavík. Mynd: Ane Cecilie Blichfeldt/norden.org

„Ísland er í fremstu röð í heiminum og er til fyrirmyndar hvað varðar jafnrétti, framsækna stjórnunarhætti og mannréttindi. Eftir sem áður ber það að vera algjört forgangsatriði að tryggja öllum félagsleg réttindi og öryggi,“ sagði Katrougalos í yfirlýsingu í lok heimsóknarinnar 28.maí 2025.

Sérfræðingurinn lagði áherslu á að íslenskum stofnunum bæri að aðlaga sig að þróun félagslegara þarfa, sérstaklega hvað varðar fjölgun innflytjenda og ferðamanna.

Aukning upplýsingaóreiðu og hatursorðræðu

 Katrougalos varaði við aukningu upplýsingafölsunar og hatursorðræðu, sérstaklega á netinu. Ráðist væri að fólki vegna trúar og uppruna, auk transfólks.  Hann lagði áherslu á að áætlun um að berjast gegn hatursorðræðu, sem lögð var fram 2023, hafi ekki náð fram að ganga. Skoraði hann á Ísland að þróa yfirgripsmikla áætlun til að takast á við þetta mál.

Kaffihús. Mynd: Yadid Levy/norden.org

Sérfræðingurinn sagðist einnig ástæðu til að hafa áhyggjur af þvingunarmeðferð geðjsúkra og hvatti til öflugri lagalegrar verndar til að gæta réttinda sjúklinga og veikburða hópa.

Katrougalos sagði að mikilvægar lagalegar umbætur hefðu verið samþykktar til að sporna við kynbundnu ofbeldi. Hann hvatti ríkisstjórnina til að grípa til frekari aðgerða til að tryggja að allar kærur væru rannsakaðar af lögreglu og sótt til saka; og fórnarlömb fengju fullnægjandi stuðning.

Framarlega í jafnréttismálum

„Ísland er til fyrirmyndar í heiminum hvað varðar þá forystu sem landið hefur tekið í jafnréttismálum,“ sagði sérfræðingurinn. „Framsæknir stjórnunarhættir sýna að lítið land getur haft áhrif á heimsvísu.”

Druslugangan. Mynd: Iris Dager / norden.org
Druslugangan. Mynd: Iris Dager / norden.org

 Katrougalos fagnaði einnig staðfestu Íslands í skuldbindingum sínum við alþjóðlega mannréttindavernd.

„Það er til fyrirmyndar að auka opinbera þróunaraðstoð fremur en minnka hana við núverandi aðstæður,“ sagði hann.

Óháði sérfræðingurinn mun kynna skýrslu sína í heild á fundi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í september 2026.

George Katrougalos, óháður sérfræðingur Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna
George Katrougalos, óháður sérfræðingur Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna

Sérfræðingurinn

*George Katrougalos, er óháður sérfræðingur um eflingu lýðræðislegrar- og jafnrar alþjóðareglu. ( Independent Expert on the promotion of a democratic and equitable international order).

Sérstakir erindrekar, Óháðir sérfræðingar og vinnuhópar eru hluti af því sem nefnist sérstakar málsmeðferðir (Special Procedures) á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. Sérfræðingarnir eru ólaunaðir, teljast ekki til starfsfólks Sameinuðu þjóðanna, eru óháðir ríkisstjórnir og starfa í eigin nafni.