Sigmundur Davíð: jöklar að hverfa á Íslandi

0
548
langjokull

langjokull
1.desember 2015. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra lýsti stuðningi við metnaðarfullt samkomulag” í ávarpi sínu á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP21) í gær.

SDG COP21Forsætisráðherra hóf ávarp sitt á að votta frönsku þjóðinni samúð vegna hryðjuverkaárásanna í París fyrr í mánuðinum. Forsætisráðherra sagðist vonast til að Parísafundurinn næði saman um nýjan loftslagssamning og að Ísland styddi metnaðarfullt samkomulag.

Þá sagði forsætisráðherra áhrif loftslagsbreytinga afar sýnileg á Íslandi – jöklarnir væru að hörfa og ef ekkert verði gert til að draga úr losun, gætu þeir horfið að miklu leyti á næstu 100 árum. Forsætisráðherra kom inn á hækkun hitastigs og súrnun hafsins og slæm áhrif þess á vistkerfi sjávar. Hann kvað Ísland hafa náð miklum árangri við að draga úr losun en meira þyrfti til.

Stjórnvöld hafi tilkynnt um verkefni er miði að því að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi; í samgöngum, sjávarútvegi, landbúnaði og landnotkun – í samvinnu við viðkomandi geira. Þá lagði forsætisráðherra áherslu á nýtingu jarðvarma þar sem Ísland hefði verið í forystu til margra ára.

Forsætisráðherra segir „greinilegt að vilji sé fyrir hendi hjá þjóðarleiðtogum til að ná samkomulagi um nýjan loftslagssamning, samningamenn eigi hins vegar þungt verk fyrir höndum næstu dagana við að ná samkomulagi“.
Ræðu forsætisráðherra má finna hér.