Sjálfsákvörðunarréttur þjóða

0
752
Trusteeship

?? 75 ára afmæli– 75 dæmi um að Sameinuðu þjóðirnar skipti sköpum (20) ??

SÞ75 logo

Þegar Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar bjuggu 750 milljónir manna eða nærri þriðjungur jarðarbúa á landsvæðum sem ekki nutu eigin stjórnar. Þau voru yfirleittupp á náð nýlenduvelda komin.

Sameinuðu þjóðirnar léku lykilhlutverk í því að 80 ríki hlutu sjálfstæði og nutu sjálfsákvörðunarréttar.

Gæsluverndarsvæði

Þar á meðal voru 11 gæsluverndarsvæði. Samkvæmt hinu upprunalega alþjóðlega gæsluverndarkerfi var fylgst með stöðu 11 landsvæða. Sum þeirra höfðu verið á umboðssvæði Þjóðabandalagsins, verið aðskilin frá ,,óvinaríkjum“ vegna síðari heimsstyrjaldarinnar. Önnur gengust af frjálsum vilja undir kerfið

Nú eru 17 svæði í heiminum talin til landsvæða sem ekki njóta eigin stjórnar. Þar búa  innan við 2 milljónir manna.

Sjá nánar: https://www.un.org/dppa/decolonization/en/about

MótumFramtíðOkkar #UN75