Talið er að einn milljarður og þrjú hundruð milljónir jarðarbúa teljist til fatlaðra. Þetta er 16% heimsbyggðarinnar eða sjötti hver maður. 3.desember er Alþjóðlegur dagur fatlaðra.
Um allan heim mætir fatlað fólk og heimili þeirra ýmsum hindrunum í að fullnægja markmiðum um félagslega þróun:
- Fatlaðir eru líklegri en aðrir að búa við fátækt.
- Sumt fatlað fólk deyr allt að 20 árum fyrr en fólk án fötlunar.
- Líkur þess á að glíma við þunglyndi, astma, sykursýki, offitu og slæmt tannheilbrigði eru meiri en annara.
- Fatlað fólk sætir enn mismunun á vinnumarkaði, fær lægri laun og er hlutfallslega fjölmennari en aðrir í óopinbera geiranum.
Þema alþjóðlega dagsins 2025 er: Sköpun samfélaga þar sem fötlun er inngilt í þágu félagslegra framfara.
Þemað endurspeglar ný-ítrekaðar skuldbindingar veraldarleiðtoga á nýafstöðnu Félagsmálaþingi Sameinuðu þjóðanna (Second World Summit for Social Development). Í yfirlýsingu þingsins sagði að stefnt sé að réttlátari, inngildari, jafnari og sjálfbærari heimi.
Áætlun Sameinuðu þjóðanna um þátttöku fólks með fötlun
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna lýsti því yfir að samtökunum bæri að gefa gott fordæmi og taka forystu í málefnum fólks með fötlun þegar hann ýtti úr vör sérstöku átaki (United Nations Disability Inclusion Strategy) árið 2019. Stefnt var að því að að inngilding fatlaðs fólks næði til allra hluta starfseminnar.
Með gildistöku áætlunarinnar ítrekaði Sameinuðu þjóða-kerfið að full mennréttindi til handa fötluðum sé óaðskiljanlegur og ríkur þáttur í öllum mannréttindum og grundvallarréttindum.
Alþjóðlegur dagur fatlaðs fólks, sjá nánar hér.
