Skorin upp herör gegn fúkkalyfjaónæmi

0
541
Mainpic AMR resized

Mainpic AMR resized

28.september 2016. Oddvitar aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna hafa í fyrsta skipti ákveðið að taka höndum saman á heimsvísu geng fúkkalyfjaónæmi.

Fúkkalyfjaónæmi (AMR) gerist þegar bakteríur, vírusar, sníkjudýr og sveppir þróa ónæmi gegn lyfjum sem áður unnu á þeim.MargaretChan resized

Leiðtogarnir samþykktu í síðustu viku á vettvangi Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þverfaglegar samhæfðar aðgerðir til að uppræta fúkkalyfjaónæmi. Aðgerðirnar ná til mannlegrar heilsu, dýralækni og landbúnaðar.

Þetta var einungis í fjórða skipti sem heilbrigðismál eru til umræðu á Allsherjarþinginu, en áður hefur verið rætt um HIV, ebólu og ósmitandi sjúkdóma.

Ríki heims ítrekuðu skuldbindignar sínar til að þróa landsáætlanir um fúkkalyfjaónæmi (Global Action Plan on Antimicrobial Resistance), sem byggir á vegvísi frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO).

Neðri mynd: Margaret Chan, forstjóri WHO.