A-Ö Efnisyfirlit

Skýrsla um Hammarskjöld til Allsherjarþings

 Hammarskjold2

11.febrúar 2014. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur farið þess á leit við Allsherjarþingið að hann fái að skýra frá rannsókn á dauða Dags Hammarskjöld.

 Í bréfi til forseta Allsherjarþingsins segir Ban að “honum hafi borist ný sönnunargögn“ um dauða Hammarskjöld, fyrrverandi framkvæmdastjóra samtakanna árið 1961. Ban var afhent skýrsla lögfræðinganefndar sem fóru yfir málið og honum afhent rannsóknargögn í tvígang, nú síðast í lok desember á síðsta ári. Nefndin hafði komist að þeirri niðurstöðu að ástæða væri til að efna til opinberrar rannsóknar á dauða Hammarskjölds og fimmtán annara í flugslysi í Norður-Ródesíu sem nú heitir Sambía, árið 1961.

Einn af hvatamönnum rannsóknar lögfræðinganna, Karl Gustav Hammar, fyrverandi erkibiskup sænsku þjóðkirkjunnar hefur fagnað frumkvæði framkvæmdastjórans. “Mín túlkun er sú að hann vilji að aðildarríkin líti í eigin barm og athugi hvort þau hafa einhverjar upplýsingar í skalasöfnum sínum. Lögfræðinganefndin benti á NSA (Bandarísku þjóðaröryggisstofnunina) en ég held að Ban Ki-moon vilji draga úr þrýstingi með því að spyrja almennt: veit einhver eitthvað? Nú þegar málið kemst á dagskrá Allsherjarþingsins , er möguleiki á að ræða málið,” sagði Hammer í viðtali við sænska blaðið Dagens Nyheter. 

NSA hefur viðurkennt í svari til nefndarinnar að hafa staðið fyrir athugunum á flugumferð á þeim stað sem slysið varð 1961 og hafi tvö skjöl sem stofnunin neitar þó að afhenda af þjóðaröryggisástæðum. Einnig er talið að hægt sé að leita fanga í breskum skjalasöfnum.

Sir Stephen Sedley, frá Bretlandi var formaður lögfræðinganefndarinnar en aðrir nefndarmenn voru Ambassador Hans Corell (Svíþjóð), Richard Goldstone (Suður Afríku) og Wilhelmina Thomassen (Hollandi).

Skýrsla lögfræðinganefndarinnar: http://www.hammarskjoldcommission.org/report/
Bréf framkvæmdastjórans til forseta Allsherjarþingsins: http://daccess-dds-ny.un.org/doc/UNDOC/GEN/N14/227/12/PDF/N1422712.pdf?OpenElement