Vistvangur. Mennta,- vísinda, og menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna hefur staðfest umsókn Íslands um að Snæfellsnes verði fyrsti UNESCO vistvangur landsins.
„Með næstum þrjátíu nýjum tilnefningum á þessu ári hefur Heimsnet vistvanga okkar náð mikilvægum áfanga og verndar nú 5% jarðarinnar,” segir Audrey Azoulay forstjóri UNESCO.
Hugtakið vistvangur er íslenskt nýyrði yfir hugtakið Biosphere Reserve, en þau svæði eru viðurkennd af MAB-áætlun UNESCO (Man and the Biosphere Programme). Vistvangur nýtir náttúru- og félagsvísindi sem grunn til að auka lífsgæði íbúa og stuðla að sjálfbærri þróun, með farsælu samspili umhverfis, mannlífs og menningar segir í fréttatilkynningu frá Svæðisgarðsins Snæfellsness og sveitarfélaganna á Snæfellsnesi.
Á Snæfellsnesi er einnig að finna Snæfellsjökulsþjóðgarð, sem stofnaður var 2001 að áeggjan heimamanna. Landsvæði þjóðgarðsins verður kjarnasvæði í vistvangnum á Snæfellsnesi og eru þjóðgarðurinn og Svæðisgarðurinn Snæfellsnes því samstarfsaðilar í verkefninu.
Snæfellsnes fellur vel að viðmiðum UNESCO
Að frumkvæði sveitarfélaganna á Snæfellsnesi var hafin skoðun á því árið 2020 hvað fælist í aðild að UNESCO vistvangi. Niðurstaða þeirrar vinnu var að Snæfellsnes félli vel að þeim viðmiðum sem UNESCO vistvangar setja. Með því að gerast vistvangur fengi Snæfellsnes aðgang að dýrmætri þekkingu og reynslu annarra slíkra svæða á því hvernig hægt sé að flétta sjálfbæra þróun, þekkingu á átthögum, umhverfi og menningu við markvissa uppbyggingu atvinnulífs. Auk þess fælist í því aðild að „vörumerki” UNESCO, sem er eitt það þekktasta í heiminum. Í framhaldinu var unnið að gerð umsóknar á vegum stýrihóps sem skipaður var af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undir stjórn fulltrúa Snæfellinga, og var henni skilað í september 2024.
