Sameinuðu þjóðirnar hafa látið í ljós áhyggjur vegna þungra dóma sem hafa verið kveðnir upp yfir heilbrigðisstarfsfólki, kennurum og fleirum í Bahrain eftir lýðræði-mótmælanna fyrr á þessu ári.
Dómarnir eru frá þriggja ára fangelis til dauðarefsingar. Þjóðaröryggisdómstóllinn, sem kvað dómanana upp er í raun herdómstóll. Rupert Colville, talsmaður Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna segir að ástæða sé til að hafa alvarlegar áhyggjur af því að herdómstóll kveði upp svo þunga dóma yfir óbreyttum borgurum án eðlilegrar málsmeðferðar. Hann bendir á að allir dómarar séu skipaðir af hernum en þaðan kemur einnig saksóknarinn.
Talsmaður Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna gagnýndi einnig dómana.
“Framkvæmdastjórinn krefst þess að allir pólitískir fangar verði látnir lausir og ítrekar hvatningu sína til æðstu yfirvalda í Bahrain að virða eðlilega málsmeðferð og viðra alþjóðleg viðmið í mannréttindamálum.”
