A-Ö Efnisyfirlit

SÞ fær sinn fyrri sess í utanríkisstefnu Svía

Wallström

12.febrúar 2015. Sænska ríkisstjórnin tilkynnti í gær um stefnubreytingu varðandi þátttöku Svíþjóðar í Sameinuðu þjóðunum.
„Sameinuðu þjóðirnar munu fá á ný sína fyrri stöðu í utanríkisstefnu Svíþjóðar,” sagði Margot Wallström, utanríkisráðherra í fyrstu yfirlýsingu stjórnarinnar sem jafnaðarmenn veita forystu um utanríkismál.

Wallström lagði áherslu á lykilhlutverk Sameinuðu þjóðanna í friðar- og öryggismálum.“Við viljum og við getum tekið ábyrgð á sameiginlegum lausnum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.”

Sænsk sveit var send til Malí fyrir skemmstu til að taka þátt í friðargæslu á vegum MINUSMA, friðargæslusveitar Sameinuðu þjóðanna. Það er fyrsta meiriháttar framlag Svía til aðgerða undir forystu Sameinuðu þjóðanna frá 2006. Ákvörðunin var þó tekin í tíð fyrri ríkisstjórnar en hún lagði þó fremur áherslu á þátttöku í aðgerðum á vegum NATO og Evrópusambandsins.

„Framlag okkar til aðgerða Sameinuðu þjóðanna í Malí er til marks um trú okkar á friðarstefnu á heimsvísu.”

Aleksander Gabelic, formaður félags Sameinuðu þjóðanna í Svíþjóð fagnaði yfirlýsingu ráðherrans. „Við höfum hvatt til þess um árabil að Svíar taki að nýju þátt í aðgerðum Sameinuðu þjóðanna. Yfirlýsing ráðherrans um að þátttöku okkar í Malí verði fylgt eftir, þýðir að Svíþjóð getur að nýju, eftir átta ára fjarveru, lagt sitt lóð á vogarskálarnar, í auknum mæli, til uppbyggingar friðar og öryggis.”

Svíþjóð hefur lýst yfir framboði til setu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Mynd: Wallström flytur yfirlýsingu sína um utanríkismál í Riksdagen, sænsku þinginu í gær. Melker Dahlstrand/Riksdagen