Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna á Fílabeinsströndinni (Côte d’Ivoire) gripu til hernaðaraðgerða á mánudag 4. apríl með stuðningi franskra hersveita í því skyni að hindra notkun þungavopna gegn óbreyttum borgurum. Framkvæmdastjóri samtakanna, Ban Ki-moon fyrirskipaði þeim að grípa til “allra tiltækra ráða” til að verja sjálfa sig og saklausa óbreytta borgara nú þegar ástandið í Vestur-Afríkuríkinu hefur enn versnað til muna.

“Þetta er bein afleiðing þess að Gbagbo hefur neitað að afsala sér völdum til Ouattara forseta á friðsamlegan hátt”, segir í yfirlýsingu framkvæmdastjórans. “Landið hefur orðið sokkið í hyldýpi ofbeldis og mikið mannfall orðið meðal óbreyttra borgara.”
Síðustu daga hafa sveitir hliðholla Gbagbo beitt þungavopnum svo sem sprengjuvörpum og stórum vélbyssum gegn óbreyttum borgurum í Abidjan, viðskiptahöfuðborg landsins.
Þessar sveitir hafa ráðist á höfuðstöðvar sveita Sameinuðu þjóðanna UNOCI. Fjórir friðargæsluliðar hafa særst í þessum árásum. Að auki hefur verið ráðist á sveitir UNOCI sem verndað hafa óbreytta borgara og á bílalestir sem flutt hafa særða á sjúkrahús. Enn fleiri friðargæsluliðar hafa særst í slíkum árásum. Af þessum sökum fyrirskipaði Ban hinum friðargæsluliðunum átta þúsund í sveitum UNOCI að beita öllum tiltækum ráðum til að hindra notkun þungavopna með stuðningi franskra sveita, með skírskotun til fyrri samþykkta Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
“Ég vil leggja áherslu á að UNOCI er ekki stríðsaðili,” sagði Ban. “Sveitin hefur gripið til þessara aðgerða í sjálfsvörn og til að verja borgara í samræmi við ályktanir öryggisráðsins.”

