Mars 2015. Sænska ríkisstjórnin tilkynnti 11.febrúar að hún hygðist að nýju taka aukinn þátt í aðgerðum undir forystu Sameinuðu þjóðanna.
Margot Wallström, nýskipaður utanríkisráðherra hét því að Sameinuðu þjóðirnar fengju að nýju sinn forna sess í utanríkisstefnu Svía, í fyrstu yfirlýsingu stjórnarinnar um utanríkismál í Riksdagen, sænska þinginu.
Wallström lagði áherslu að Svíar vildu og gætu axlað ábyrgð á sameiginlegum lausnum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Sænsk herdeild hefur þegar verið send til Malí til að taka þátt í aðgerðum MNUSMA-sveitarinnar en það er fyrsta meiriháttar þátttaka Svíþjóðar í aðgerðum undir forystu Sameinuðu þjóðanna frá 2006.
„Framlag okkar til aðgerða Sameinuðu þjóðanna í Malí er til marks um trú okkar á friðarstefnu á heimsvísu.“
Frá þúsund til eins
Wallström segir að það sé stefna ríkisstjórnarinnar að Svíþjóð eigi að taka þátt í fleiri aðgerðum undir stjórn SÞ.

Formaður sænska féalgsins, Aleksander Gabelic, fagnar fréttum um aukið framlag Svía. „Við höfum hvatt til 
Umdeild vopnasala
Framboð Svía til setu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna kann að vera ein skýring á auknum áhuga á þátttöku í aðgerðum Sameinuðu þjóðanna.
Svíþjóð hefur þrisvar setið í Öryggisráðinu: 1957-58, 1975-76 og 1997-98. Eins og önnur önnur norræn ríki, Finnland og Ísland, hefur Svíþjóð ekki riðið feitum hesti frá kosningum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna að undanförnu. Árið 2012 féll Svíþjóð í kosningum til Mannréttindaráðsins fyrir árin 2013-2014. Alþjóðlega Friðarstofnunin komst að þeirri niðurstöðu í úttekt sinni á óförum Finna og Íslendinga í kosningum til Öryggisráðsins, að ein af ástæðunum væri minnkandi framlag Norðurlanda til friðargæslu Sameinuðu þjóðanna.

Blaðið heldur því fram að stjórnin vilji ekki skaða tvíhliða samskipti við Sádi Arabíu því ríkið hafi áhrif á kosningar til Öryggisráðsins. Forsætis- og utanríkisráðherra hafa sætt gagnrýni og þrýstingi, jafnvel innan raða síns eigin flokks. Sérstaklega þó hefur Græni flokkurinn verið hávær í andúð sinni á samningnum.
„Það er til einskis að ná kosningu til Öryggisráðsins ef það er á kostnað grundvallarsjónarmiða okkar,“ segir Valter Mutt, talsmaður flokksins í utanríkismálum í viðtali við Svenska Dagbladet.
Blaðafulltrúi Margot Wallström vísar á bug öllum tengslum á milli framboðsins og samningsins við Sádi Arabíu.
Óðs manns æði?
Yfirlýsing Wallström í þinginu var gagnrýnd í sænskum fjölmiðlum fyrir að vera meiri umbúðir en innihald. Blaðið Dagens Nyheter minnti á að Sameinuðu þjóðirnar tryggðu ekki öryggi Svíþjóðar gegn utanaðkomandi árás. „Það er algjörlega á hreinu að Sameinuðu þjóðirnar koma okkur ekki til hjálpar og skiptir engu hvort við sitjum í Öryggisráðinu eða ekki.“ Blaðið segir stefnu stjórnarinnar í málum Sameinuðu þjóðanna „sjálfsblekkingu“ og spyr hvort seta í ráðinu skipti einhverju máli, þar sem Pútin hafi hvort sem er yfir neitunarvaldi að ráða.“
Per Gudmundsson, leiðarahöfundur Svenska Dagbladet segir að Svíþjóð þurfi að auka áhrif sín í kringum Eystrasaltið. Hann segir að ríkisstjórnin leggi öll egg sín í eina körfu. „Hvað ef þetta gengur ekki eftir og við náum ekki kjöri? Og þar að auki:, hvað ef í ljós kemur að Rússland og Kína kæra sig kollótt um „femíníska utanríkisstefnu“ okkar og „samstöðu án landamæra“?“

