SÞ helgar ungu fólki mannréttindaginn

0
719

Sameinuðu þjóðirnar heiðra ungt fólk í heiminum á Mannréttindadegi samtakanna 10.desember með átaki sem nefnt er „Ungt fólk rís upp í þágu mannréttinda.”

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir í yfirlýsingu að samtökin fagni mikilvægu hlutverki ungs fólks í að gæða mannréttindi nýju lífi.

„Ungt fólk um allan heim gengur fylktu liði. Það skipuleggur sig og lætur í sér heyra um réttinn til heilbrigðs umhverfis. Það stendur vörð um réttindi kvenna og stúlkna, um réttinn til að taka þátt í ákvörðunum og fyrir tjáningarfrelsi. Þau fylkja liði um réttinn til að lifa í friði, fyrir réttlæti og jöfnum tækifærum,” segir Guterres.

Jákvætt breytingarafl

Á mannréttindadeginum verður kastljósi beint að ungu fólki. Einkum að hlutverki þess sem jákvæðs breytingaafls.  Leitast er við að láta raddir þeirra heyrast og virkja sem flesta í þágu verndar réttinda.

Átakinu er ætlað að efla ungt fólk og hvetja það. Sýn á fram á hvernig ungt fólk um allan heim rís upp í þágu réttinda. Hvernig það berst gegn kynþáttahatri, hatursorðræðu, einelti, mismunun og loftslagsbreytingum, svo eitthvað sé nefnt. Á næstu tveimur vikum mun átakinu sem er á vegum embættis Mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna, beina kastljósinu að forystuhlutverki unga fólksins, efla raddir þeirra og sýna hvenrig það starfar í þágu mannréttinda.

„ Það er mjög viðeigandi að við skulum halda upp á Mannréttindaginn á meðan Loftslagsráðstefnan í Madríd ræðir réttlæti í loftslagsmálum,” segir Michelle Bachelet Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna. „Við eigum milljónum barna, unglinga og ungmenna skuld að gjalda. Þau hafa risið upp og látið sífellt meira í sér heyra um þá vá sem plánetan stendur frammi fyrir. Þetta unga fólk er réttilega að benda á það er framtíð þeirra sjálfra sem er í veði og framtíð ófæddra kynslóða.”

1.2 milljarðar jarðarbúa eru á aldrinum 15-24 ára eða sjötti hver maður. Fleiri unglingar og ungmenni eru nú á lífi en nokkru sinni í sögu mannsins. Unga fólkið er almennt betur menntuð og heilbrigðara en nokkru sinni og hefur meiri aðgang að tækni og upplýsingum – sem nýta má í þágu mannréttinda.
Sjá nánar hér og hér.