A-Ö Efnisyfirlit

Stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum ógnar fæðuöryggi um 12 milljóna kvenna

Fjölskyldur á vergangi halda frá Al Zeitoun-hverfinu í Gasaborg til suðurhluta svæðisins. Mynd: © UN Women/Samar Abu Elouf
Fjölskyldur á vergangi halda frá Al Zeitoun-hverfinu í Gasaborg til suðurhluta svæðisins. Mynd: © UN Women/Samar Abu Elouf

 Á grundvelli greiningar á gögnum frá 28 löndum áætlar Jafnréttisstofnun Sameinuðu þjóðana (UN Women) að 11,7 milljónir kvenna og stúlkna til viðbótar gætu búið við fæðuóöryggi fyrir lok ársins 2026. Stigmögnunin og truflanirnar hækka verð á matvælum, orku, áburði og flutningum.

Í þeim 28 löndum sem greind voru eru konur og stúlkur 53 prósent þeirra 22 milljóna manna til viðbótar sem gætu búið við fæðuóöryggi fyrir lok ársins samkvæmt spám. Þessar áætlanir, sem byggja á sviðsmyndum, bætast við þær áætluðu 208 milljónir kvenna og stúlkna sem þegar búa við fæðuóöryggi í þeim löndum sem greind eru í útgáfunni Kynjaviðvörun: Áhætta fyrir fæðuöryggi kvenna og stúlkna vegna stigmögnunar átaka í Mið-Austurlöndum.

Í apríl 2026 snéru íbúar Bednayel í Líbanon, sem hafa þurft að flýja heimili sín, aftur til að fara í gegnum það sem eftir er af eyðilögðum heimilum þeirra. Mynd: UN Women/Georges Roukouz
Í apríl 2026 snéru íbúar Bednayel í Líbanon, sem hafa þurft að flýja heimili sín, aftur til að fara í gegnum það sem eftir er af eyðilögðum heimilum þeirra. Mynd: UN Women/Georges Roukouz

„Við vitum fyrir víst að þegar matur er af skornum skammti borða konur minna og síðastar. Þær skipta oft yfir í næringarsnauðara mataræði eða sleppa máltíðum alveg til að setja þarfir annarra í forgang. Kynjamisrétti ræður því hver hefur aðgang að mat og þeim bjargráðum sem þarf til að afla hans. Þess vegna er fjárfesting í konum og stúlkum örugg leið til að tryggja velferð fjölskyldna og samfélaga,“ segir Nyaradzayi Gumbonzvanda, aðstoðarframkvæmdastjóri UN Women.

Matvæla- og fjárhagsaðstoð samtvinnuð

Í kynjaviðvöruninni er lögð áhersla á þörfina fyrir samþætt viðbrögð við vaxandi fæðuóöryggi sem mæta þörfum kvenna og stúlkna með matvæla- og fjárhagsaðstoð, næringu, vernd, stuðningi við lífsviðurværi og landbúnað. Hvatt er til þess að efla aðgang kvenna að landi, lánsfé, grunnþjónustu og öðrum framleiðsluverðmætum sem geta hjálpað heimilum að standast verðsveiflur á matvælum og verja lífsviðurværi sitt.

Þann 7. apríl 2026 sátu konur og stúlkur í húsagarðinum við Sibline-miðstöðina , sem nú er starfrækt sem sameiginlegt neyðarskýli í annað sinn frá árinu 2024 .
Þann 7. apríl 2026 sátu konur og stúlkur í húsagarðinum við Sibline-miðstöðina , sem nú er starfrækt sem sameiginlegt neyðarskýli í annað sinn frá árinu 2024 . Mynd: UN Women/Georges Roukoz

Í útgáfunni er einnig lögð áhersla á mikilvægi þess að beina fjármunum til landa og samfélaga þar sem konur og stúlkur standa frammi fyrir margþættri og samverkandi áhættu og að veita stuðning á réttum tíma, meðal annars fyrir mikilvæg ræktunartímabil.

„Í fyrsta lagi þurfum við að vernda aðgang kvenna að mat og þau bjargráð sem þær þurfa til að standast áföll og ná sér eftir þau. Það getum við gert með því að tvinna saman matvæla- og fjárhagsaðstoð og næringu, vernd, stuðning við lífsviðurværi og landbúnað, og tryggja að konur hafi aðgang að landi, lánsfé, þjónustu og eignum,“ sagði Nyaradzayi Gumbonzvanda.

Nyaradzayi Gumbonzvanda, aðstoðarframkvæmdastjóri UN Women. Mynd: ©UN Women/Ryan Brown
Nyaradzayi Gumbonzvanda, aðstoðarframkvæmdastjóri UN Women. Mynd: ©UN Women/Ryan Brown

Fáar eiga bankareikning eða farsímagreiðslureikning

Betri kyngreind gögn skipta sköpum til að greina hvar fæðuóöryggi fer vaxandi og hvaða áhrif það hefur á konur og stúlkur. Í því felst meðal annars að skilja hver borðar minna, missir tekjur eða lífsviðurværi, tekur á sig aukna ólaunaða umönnun eða stendur frammi fyrir aukinni hættu hvað varðar næringu og öryggi innan heimilisins.

Í Egyptalandi, Írak, Palestínu, Súdan og Sýrlandi eru meira en 80 prósent kvenna utan vinnumarkaðar. Í Afganistan og Jemen er hlutfallið um 95 prósent. Margar þeirra kvenna sem eru í vinnu búa við ótryggt ráðningarsamband. Það á við um meira en 80 prósent kvenna í Afganistan, Búrkína Fasó, Eþíópíu, Haítí, Malí og Suður-Súdan.