A-Ö Efnisyfirlit

Strumparnir: Látum rödd okkar heyrast í þágu betri heims fyrir öll börn

Herferð með Strumpunum.
Herferð með Strumpunum.

Strumparnir og Paramount-kvikmyndaverið hafa gengið til liðs við ACT NOW átak Sameinuðu þjóðanna og UNICEF í nýrri herferð sem hefst 27.júní 2025.

Markmið herferðarinnar er að hvetja fólk, sérstaklega börn til að, láta í sér heyra, finna styrk sinn og annara og skapa vegvísi fyrir betri heim.

Herferðin hefst mánudaginn 23. Júní með birtingu stafræns efnis. Þar á meðal eru stjörnuprýdd myndbönd með Strumpana og raddir Rihanna Rihanna, Hannah Waddingham, Billie Lourd og Amy Sedaris í aðalhlutverki.

Myndböndin eru hvatning til aðgerða. Áhorfendum er beint til “Speak up” (látið í ykkur heyra) á vefsíðu ActNow.  ActNow er aðgerðasíða Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Einnig eru birt á næstu vikum litríkt efni með Strumpana í aðalhlutverki, sem búast má við að nái til tuga milljóna um allan heim. Þar eru Strumpunum lögð í munn helstu áherslur herferðarinnar. Almenningur er hvattur til aðgerða og hugmyndir kynntar á vefsíðu ActNow. Þar er að finna verkfærakistu aðgerða fyrir börn og foreldra og krækjur á viðeigandi vefsíður UNICEF.

Efnið fyrir samfélagsmiðla er til í íslenskum útgáfum hér.

Rihanna er í Strumpaliðinu.
Rihanna er í Strumpaliðinu.

Rétturinn til að njóta sanngjarnrar meðferðar

Herferðin snýst um að minna á rétt allra – þar á meðal sérhvers barns – til að njóta sanngjarnar meðferðar og að allir hafi rétt til að láta rödd sína heyrast. Börn eru hvött til að finna rödd sína og ástvinir þeirra til að hjálpa þeim til að tala máli betri heims í allra þágu.

Einstaklingur eru minntir á að þeir séu ekki einir og að þeir geti leitað til annara til að finna styrk til að taka þátt í ákvörðunum sem snerta líf þeirra. Rödd okkar skiptir máli. Það heyrist best í okkur, þegar við tölum saman.

Herferð með Strumpunum.
Herferð með Strumpunum.

Alheimshreyfing

Herferðin stendur yfir í átta vikur og er dreift á helstu stafrænu vettvöngum Sameinuðu þjóðanna, UNICEF og Paramount kvikmyndafélagsins, þar á meðal á samfélagsmiðlum og vefsíðum. Herferðin nýtur einnig stuðnings Aworld snjallforritsins.

Hún verður einnig í sjónvarpi og kvikmyndahúsum og á risaskjá á einum þekktustu krossgötum og torgi heims á sjálfu Times Square í New York.

Strumpaherferðin

Atburðir

Samélagsmiðlaherferðin verður einnig sýnileg á ýmsum atburðum í heiminum, kvikmyndasýningum og frumsýningum á vegum Paramoutn, Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna og UNICEF.