Sameinuðu þjóðirnar. Súdan. Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur varað við því að óbreyttir borgarar eigi yfir höfði sér meiri háttar grimmdarverk í Darfurhéraði í Súdan. Átök hafa harðnað í kringum El Fasher, héraðshöfuðborg Norður-Darfur. Svokallaðar RSF vígasveitir hafa setið um borgina í meir en 500 daga.
„El Fasher rambar á brún enn frekari hörmunga ef ekki verður gripið til brýnna aðgerða til að losa takið á borginni og vernda íbúana,” sagði Türk í yfirlýsingu.
Frá 19.til 29.september hafa að minnsta kosti 91 óbreyttur borgari verið drepinn í stórskotaliðsárásum, dróna árásum og landárásum. Ráðist hefur verið á borgaralega innviði. Óttast er að markmiðið sé að stökkva fólki á flótta, þar á meðal frá Abu Shouk búðum fyrir fólk sem flosnað hefur upp innanlands.
19.september var gerð drónaárás á mosku með þeim afleiðingum að ekki færri en 67 óbreyttir borgarar týndu lífi. Þá voru gerðar tvær árásir á markaði í Daraja Oula í síðustu viku. Enn eru áreiðanlegar heimildir fyrir að 23 óbreyttir borgarar hafi verið drepnir þegar ráðist var á almenningseldhús í Abou Shouk.
Leyfa ber fólki að fara
Türk lagði áherslu á að vernda bæri borgara, sem enn héldist við í El Fasher, einkum eldra fólk, sjúklingar og fólk með fötlun.
„Tryggja ber að fólk geti yfirgefið El Fasher af fúsum og frjálsum vilja og á öruggan hátt.“ Hann minnti á að leiðir út úr borginni væru á valdi vígasveita og fregnir hafi borist af aftökum, mannránum, ránum og pyntingum.
Þá varaði hann við hættu á kynþáttahreinsunum á borð við árás RSF á Zamzam-búðirnar í apríl. Þá voru konur af Zaghawa kynætti beittar kynferðislegu ofbeldi. Hann hvatti til tafarlauss og óhindraðs aðgangs fyrir mannúðaraðstoð. Matur og vatn eru af skornum og heilbrigðisþjónusta í molum.
Hver er að berjast?
Núverandi borgarastríð í Súan byrjaði í apríl 2023. Stríðið heyja tvær ólíkar fylkingar sem eitt sinn voru í bandalagi. Annars vegar er Súdanski herinn (SAF) undir forystu Abdel Fattah al-Burhan hershöfðingi og de facto þjóðhöfðingja. Hins vegar eru Skyndiviðbragðssveitirnar (RSF), valdamiklar vígasveitir undir forystu Mohameds Hamdan Dagalo (Hemedti).
Omar al-Bashir ríkti um áratuga skeið í Súdan. RSF-sveitirnir eru arftakar svokallaðra Janjawe
ed-vígasveita. Þær voru helsta verkfæri ódæðisverka að mati Alþjóðlega glæpadómsólsins (ICC), sem al-Bashir lét fremja í Darfur. Var gefin út handtökuskipun á hendur honum og öðrum háttsettum embættismönnum fyrir stríðsglæpi, glæpi gegn mannúð og þjóðarmorð í Darfur.
SAF og RSF tóku höndum saman og steyptu honum af stóli 2019 eftir að mótmæli brutust út. Þessar tvær fylkingar sameinuðust enn á ný um að víkja skammlífri borgaralegri stjórn frá völdum í október 2021 en fóru fljótlega í hár saman.
Tillraunir til að innlima RSF inn í stjórnarherinn fóru út um þúfur vegna krafna vígasveitanna um að halda sjálfstæði sínu í að minnsta kosti tíu ár. Samningaviðræður runnu út í sandinn og átök brutust út í höfuðborginni Khartoum í apríl 2023.
Hvað gera Sameinuðu þjóðirnar í Súdan?
Sameinuðu þjóðirnar og stofnanir þeirra hafa brugðist við ófremdarástandinu í landinu á ýmsan hátt. Milljónir hafa flúið að heiman og leitað skjóls ýmist innanlands eða í nágrannaríkjunum. Landsmenn hafa liðið hungur og innviðir hafa verið gjöreyðilagðir.
Leitast hefur verið við að koma neyðaraðstoð til fólks víða um landið; þar á meðal matvælum, hreinu vatni, læknisaðstoð, húsaskjóli og annari grunnþjónstu. Sameinuðu þjóðirnar hafa fylgst með og skráð mannréttindabrot, þar á meðal árásir á óbreytta borgara, brottrekstur fólks og kynferðislegt- og kynbundið ofbeldi.
Að auki hafa Sameinuðu þjóðirnar reynt að miðla málum og finna pólitískar lausnir. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt refsiaðgerðir (eignafrystingar, vopnasölubann, ferðabönn) gegn þeim sem gerst hafa sekir um ofbeldisverk eða að hindra aðgang mannúðaraðstoðar.
