Fimmtán ára gamall Svíi Adam Kanyama kom, sá og rappaði til sigurs þegar keppt var til úrslita í norrænu Rap It Up keppninni í heimaborg hans, Stokkhólmi föstudaginn 14. október.
Adam Kanyama tókst á við keppendur frá Íslandi, Danmörku, Noregi og Finnlandi í úrslitunum.
Í niðurstöðu dómnefndar sagði að Adam Kanyama hefði sigrað eftir frábæra frammistöðu á sviðinu þar sem hann sýndi með fádæma sjálfsöryggi og húmor, að hér kann að vera ein af stjörnum framtíðarinnar í norrænu rappi – eki síst þegar litið er til aldurs hans.
Sænska rappstjarnan Adam Tensta afhenti verðlaunin, andviriði 1.000 evra, heyrnartól frá Beats By Dre og upptökutíma hjá The Salazar Brothers í Redline hljóðverinu í Stokkhólmi.
Sambönd norrænu félaganna stóðu að keppninni með stuðningi meðal annars frá Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, en eitt af markmiðunum er að auka skilning á milli ólíkra þjóðarbrota innan Norðurlanda.
