26.júní 2015. 70 ár eru liðin í dag frá því sáttmáli Sameinuðu þjóðanna var samþykktur í Óperhúsinu í San Fransisco.

Stofnsáttmálinn hefst á hinum fleygu orðum: „Vér, hinar Sameinuðu þjóðir, staðráðnar í að bjarga komandi 
Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar á grundvelli baráttu svokallaðra „Bandamanna” í Síðari heimsstyrjöldinni gegn nasisma og fasisma. Ísland hafði ekki lýst yfir stríði á hendur Þýskalandi og var ekki stofnaðili að Sameinuðu þjóðunum. Engu að síður var stofnun samtakanna fagnað í íslenskum dagblöðum.
„Friður, þjóðasamvinna og almenn velmegun aðalmarkmið „Sameinuðu þjóðanna”, sagði í fyrirsögn sem þakti forsíðu Þjóðviljans.
.
„Í sáttmálanum segir, að hann sje byggður á sjálfsákvörðunarrjetti og jafnrjetti þjóðanna. Öllum friðelskandi þjóðum er heimilt að gerast aðiljar að sáttmálanum,” sagði í forsíðufrétt Morgunblaðsins og þess var ekki langt að bíða að Ísland sækti um aðild að Sameinuðu þjóðunum.

Áður hafði Ísland gerst aðili að fimm alþjóðastofnunum, sem síðar urðu sérstofnanir samtakanna
Sjötugsafmæli undirritunar Sáttmála Sameinuðu þjóðanna er minnst í dag í San Fransisco og gefa Sameinuðu þjóðirnar út sérstaka útgáfu af stofnsáttmálanum í tilefni afmælisins. Sýnt verður beint á vefnum frá athöfn í San Fransisco sem hefst á ræðu Jan Eliasson, vara-aðalframkvæmdastjóra klukkan 9.30 í kvöld að íslenskum tíma og má sjá hana hér og nálgast nánari upplýsingar hér.
Fulltrúi UNRIC, Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu í San Fransisco er teiknimyndahetjan Elyx, en hann er að leggja upp í ferð í kringum jörðina á 70 dögum sem lýkur á sjálfu sjötugsafmæli samtakanna 24.október.
Myndir: 1.) Elyx í San Fransisco. 2.) Athöfnin í Óperuhúsinu í San Fransisco. 3.) Forsíða Morgunblaðsins 26.júní 1945 4.) Truman, forseti Bandaríkjanna ávarpar ráðstefnuna í San fransisco. 5.) Kauffmann, sendiherra undirritar stofnsáttmálann fyrir hönd Dana.


