A-Ö Efnisyfirlit

Þekking á jarðhita flutt út til Eþíópíu

jardhiti2

2.febrúar 2015. Í byrjun síðustu viku hófst í Eþíópíu námskeið í jarðhitaborunum, skipulagt af Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi, með aðkomu sérfræðinga frá ÍSOR og Mannviti. Alls nær þjálfunin til rúmlega þrjátíu innlendra sérfræðinga.

Frá þessu er sagt í Heimsljósi, vefriti Þróunarsamvinnustofnunar Íslands:

geoethiopia-300x289„Hún fer fram bæði í skólastofu og í tengslum við borverk. „Ef fram fer sem horfir verða umfangsmiklar jarðhitaboranir í Eþíópíu á komandi árum og því mikil þörf fyrir þjálfun á þessu sviði,“ segir Davíð Bjarnason verkefnastjóri jarðhitaverkefnis Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Hann segir að miklir möguleikar séu til staðar í jarðhitanýtingu í landinu og mikill áhugi hjá stjórnvöldum að byggja upp nauðsynlega þekkingu til að stuðla að þróun og uppbyggingu á komandi árum.
Umfangsmesti stuðningur ÞSSÍ og Norræna þróunarsjóðsins innan jarðhitaverkefnisins er í Eþíópíu og hann felst bæði í aðstoð við jarðhitaleit sem og þjálfun innlendra sérfræðinga.

Samið við ítalskt fyrirtæki
Í byrjun ársins var skrifað undir samning um jarðhitaleit á Aluto Langano svæðinu í Eþíópíu við ítalska fyrirtækið ELC Electroconsult, en það fyrirtæki varð hlutskarpast í alþjóðlegu útboði sem fram fór á síðasta ári. Framkvæmd þess verkefnis hefst í byrjun febrúar. Að sögn Davíðs vinnur ELC einnig að jarðhitaleit á Tendaho Alalobeda jarðhitasvæðinu í Eþíópíu en um þessar mundir starfar teymi jarðeðlisfræðinga að viðnámsrannsóknum á svæðinu. „Stór þáttur í framkvæmd þessara rannsókna er þjálfun innlendra sérfræðinga, sem starfa við hlið alþjóðlegra jarðhitasérfræðinga við rannsóknir á vettvangi og túlkun niðurstaðna,“ segir Davíð.
Eins og áður hefur komið fram er jarðhitaverkefni ÞSSÍ og NDF framkvæmt í samstarfi við Alþjóðabankann og Davíð segir að á báðum þessum jarðhitasvæðum muni niðurstöður rannsókna skapa grunn að frekari þróun og virkjun svæðanna innan verkefna á vegum bankans.

Tvö önnur námskeið í Eþíópíu
Á næstu vikum eru einnig tvö önnur námskeið á dagskrá í Eþíópíu sem skipulögð eru af Jarðhitaskólanum. Að sögn Davíðs er þar um námskeið að ræða sem sérstaklega hafa verið þróuð og útfærð fyrir verkefni ÞSSÍ í kjölfar beiðna og þarfa í samstarfslöndum. Á fyrra námskeiðinu, sem er unnið í samstarfi við Landsvirkjun, verður farið yfir undirbúning og frágang verkefnaskjala og fjármögnunargagna fyrir jarðhitaverkefni. Seinna námskeiðið beinist að þjálfun í verkefnastjórnun jarðhitaverkefna, með sérstaka áherslu á boranir. Það er unnið í samstarfi við Verkís með aðkomu íslenskra sérfræðinga í verkefnastjórnun.“

(Heimild: Heimsljós, vefrit Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, ljósmyndir: Gunnar Salvarsson, Sverrir Þórhallsson)