Gasasvæðið. Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna segir ekki nægja að rannsaka ítrekaðar árásir Ísraela á Nasser-sjúkrahúsið sem kostaði 20 heilbrigðisstarfsmenn, sjúklinga og blaðamenn lífið. „Réttlæti ber að fullnægja,“ segir Thameen Al-Kheetan talsmaður mannréttindaskrifstofunnar.
Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hafði áður skýrt frá að árásirnar yrðu rannsakaðar. Ísrael „harmaði”, það sem hann kallaði „sorgleg mistök.”
Talsmaður mannréttindaskrifstofunnar sagði á blaðamannafundi í Genf þriðjudaginn 26.ágúst að „þessar rannsóknir (yrðu) að leiða til niðurstöðu.”

Augu og eyru umheimsins
„Þessir blaðamenn eru augu og eyru umheimsins og þá ber að vernda,“ sagði Thameen Al-Kheetan.
„Við höfum enn ekki séð neinar niðurstöður og enginn hefur verið dreginn til ábyrgðar.“
Háttsettir embættismenn Sameinuðu þjóðanna hafa fordæmt árás á Nasser-sjúkrahúsið á suður Gasa. Að minnsta kosti 20 létust í ítrekuðum árásum, þar af að minnsta kosti fjórir heilbrigðisstarfsmenn og fimm blaðamenn, að því er Tedros Adhanom Gebreyesus forstjóri Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) skýrði frá á á samfélagsmiðlinum X.
Fimmtíu til viðbótar særðust, þar á meðal alvarlega veikir sjúklingar sem voru til meðhöndlunar á sjúkarhúsinu
Forstjóri Palestínu-flóttamannahjálparinnar (UNRWA) brást einnig við á samfélagsmiðlum.
„Það er skelfilegt að horfa upp á afskipta- og aðgerðarelysi umheimsins þegar þaggað er niður í síðustu röddunum, sem greindu frá börnunum sem deyja í kyrrþey og hungursneyðinni,“ sagði forstjórinn, Philippe Lazzarini.
Hættið árásum á heilsugæslu
Lýst var formlega yfir hungursneyð á hlutum Gasasvæðisins á föstudag. Tedros hvatti til þess að snúið yrði við blaðinu í nafni mannúðar. „Bindum enda á þessa hungursneyð af mannavöldum og opnum hliðin skilyrðislaust; verndum blaðamenn og mannúðar- og heilbrigðisstarfsmenn.“
Sameinuðu þjóðirnar hafa áður greint frá að meir en 24 blaðamenn hafi verið drepnir á Gasasvæðinu frá því átök blossuðu upp að nýju fyrir nærri tveimur árum eftir árásir undir forystu Hamas á Ísrael.
Forstjóri WHO ítrekaði hvatningar um vopnahlé á Gasa eftir árásirnar á Nasser-sjúkrahúsið
„Á meðan Gasabúar eru sveltir, er ráðist á heilsugæsluna og aðgangur að heilbrigðiskerfi enn skertur með endurteknum árásum,“ sagði Tedros.

