A-Ö Efnisyfirlit

Þrælaverslunin yfir Atlantshafið: „Réttlæti í verki“

Þrælaverslunin yfir Atlantshafið með Afríkubúa, sem voru hnepptir í þrældóm, var einn alvarlegasti glæpur sögunnar. Milljónir karla, kvenna og barna voru teknar með valdi frá heimilum sínum, sviptar mannúð sinni og neyddar til að þola arðráni kynslóð eftir kynslóð. Alþjóðlegi minningardagurinn um fórnarlömb þrælahalds og þrælaverslunar yfir Atlantshafið er haldinn 25. mars.

Brasilíska söngkonan IZA heimsækir Örk endurkomunnar við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna. Minnisvarðinn býður fólki alls staðar að ígrunda arfleifð þrælaverslunarinnar og berjast gegn kynþáttafordómum og hleypidómum í dag. Mynd: UN Photo/Mark Garten

Rasísk hugmyndafræði sem réttlætti þennan glæp varð til í stofnunum og samfélögum og mótaði ójöfnuð sem enn er til staðar í dag. Þema ársins, Réttlæti í verki, hvetur okkur öll til að horfast í augu við þessa sögu af heiðarleika og viðurkenna varanleg áhrif hennar. Að stuðla að virðingu krefst þess að umbreyta kerfum sem viðhalda mismunun og tryggja að réttindi fólks af afrískum uppruna séu vernduð og virt.

„Á þessum alþjóðlega minningardegi um fórnarlömb þrælahalds og þrælaverslunar yfir Atlantshafið er okkur gert að horfast í augu við þessa arfleifð. Með því að hafna rangri frásögn um kynþáttamun og ljótri lygi um yfirburði hvítra. Með því að uppræta rasisma – á netinu, í fjölmiðlum, í skólum, í vinnunni, í stjórnmálum og innra með okkur sjálfum,” sagði António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, í tilefni minningardagsins.

Þessi dagur snýst um fræðslu

Alþjóðlegi minningardagurinn um fórnarlömb þrælahalds og þrælaverslunar yfir Atlantshafið er tími til íhugunar. En hann er líka tími til fræðslu. Þrátt fyrir goðsagnir um hið gagnstæða auðguðu þrælkaðir Afríkubúar Ameríku ekki aðeins með vinnu sinni heldur einnig með yfirfærslu á mikilvægri færni og þekkingu. Þar að auki, í stað þess að sætta sig við örlög sín, stóðu þeir í öflugri andspyrnu. Sameinuðu þjóðirnar vinna að því að varpa ljósi á slíkar sögur með fræðsluáætlun sinni um þrælaverslunina yfir Atlantshafið og þrælahald, sem er stjórnað af Alþjóðasamskiptadeildinni, og Routes of Enslaved Peoples Project, sem er rekið af Mennta-, vísinda- og menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO).

Önnur heimsráðstefnan gegn kynþáttafordómum og kynþáttamismunun 1.–12. ágúst 1983 í Genf. Mynd: UN Photo
Önnur heimsráðstefnan gegn kynþáttafordómum og kynþáttamismunun 1.–12. ágúst 1983 í Genf. Mynd: UN Photo

Hvernig varð þessi dagur til?

Árið 2006 viðurkenndi allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna með ályktun 61/19 að „þrælaverslun og þrælahald eru meðal verstu mannréttindabrota í sögu mannkyns, sérstaklega með tilliti til umfangs þeirra og tímalengdar“ og útnefndi 25. mars 2007 sem alþjóðlegan dag til að minnast tvö hundruð ára afmælis afnáms þrælaverslunar yfir Atlantshafið. Árið eftir var 25. mars með ályktun 62/122 útnefndur árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb þrælahalds og þrælaverslunar yfir Atlantshafið, frá og með árinu 2008.

Af hverju 25. mars?

Lögin um afnám þrælaverslunar voru samþykkt í Stóra-Bretlandi 25. mars 1807. Frá og með þeim degi skyldi „öll verslun og lestun við kaup, sölu, vöruskipti eða yfirfærslu á þrælum eða fólki sem ætlað er að selja, yfirfæra, nota eða meðhöndla sem þræla, stunduð eða flutt í, á eða frá nokkrum hluta Afríkustrandar eða landa, vera afnumin, bönnuð og lýst ólögleg“. En þótt lögin afnæmu þrælaverslunina yfir Atlantshafið með þrælkaða Afríkubúa, afnámu þau ekki þrælahald, sem hélt áfram í áratugi. Afnámið fylgdi í kjölfar öflugrar og viðvarandi andspyrnu þrælkaðra Afríkubúa, þar á meðal haítísku byltingarinnar, sem leiddi til stofnunar lýðveldisins Haítí árið 1804 – fyrsta þjóðin sem varð sjálfstæð í kjölfar baráttu þrælkaðra kvenna og karla.