Einelti í skólum er alvarlegt vandamál sem snertir þriðja hvern nemanda í heiminum. Einelti í skólum, þar á meðal á netinu, hefur slæm áhrif á heilsu, velferð og nám. 6.nóvember er Alþjóðlegur dagur gegn ofbeldi og einelti í skólum, þar á meðal á netinu.
Um það bil 11% ungilinga hafa sætt einelti í skóla og um sjötti hver einelti á netinu.
Ofbeldi er réttindabrot
Aðildarríki UNESCO, Mennta-, vísinda- og menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna hafa ákveðið að fyrsti fimmtudagur í nóvember skyldi vera Alþjóðlegur dagur gegn ofbeldi og einelti í skólum, þar á meðal á netinu. Með því er viðurkennt að ofbeldi í skólum er brot á réttindum barna og unglinga til menntunar, heilbrigðis og velferðar.
Á þessum degir eru kennarar, nemendur og meðlimir menntasamfélagsins, kennsluyfirvöld, tæknifyrirtæki og fleiri hvött til að leggja lóð á vogarskálarnar til að hindra hvers kyns ofbeldi. Einnig að skapa öruggt lærdómsumhverfi, sem er þýðingarmikið fyrir heilbrigði, vellíðan og nám barna og ungmenna.

Skjásnilli
Í ár er Alþjóðlegur dagur gegn ofbeldi og einelti í skólum, þar á meðal á netinu, helgaður vígorðinu Skjásnilli: að læra að vera örugg(ur) á stafrænum tímum.
Með hraðri framþróun gervigreindar eykst hætta á að nemendur verði útsettir4 fyrir ofbeldi á netinu og tæknivæddu ofbeldi. Í krafti netsins er einelti, þar á meðal neteinelti, flutt úr kennslustofunni og út í netheiminn.
Um 58% stúlkna og ungra kvenna verða fyrir áreitni á netinu. Minnihlutahópar og farandfólk verða hlutfallslega meira fyrir barðinu á hatursorðræðu og útilokun. Samt sem áður hafa aðeins 16% ríkja heims, sett lög til að hindra neteinelti með menntun að vopni.
Menntakerfið er í framlínunni. Öruggar kennslustofur eru ekki nóg, tryggja ber einnig skjáöryggi. Og það er þýðingarmikið að vera örugg(ur) á netinu eða vera skjásnjall til að tryggja börnum og ungmennum þá gæðamenntun sem þau eiga skilið.
