A-Ö Efnisyfirlit

Þúsundum mannslífa mætti bjarga árlega ef allir hefðu aðgang að salerni

Alþjóðlegi salernisdagurinn er 19.nóvember.
Alþjóðlegi salernisdagurinn er 19.nóvember.

Alþjóðlegi salernisdagurinn. Salerni. Skortur á hreinu drykkjarvatni, salernis- og hreinlætisaðstöðu kostar um eitt þúsund börn undir fimm ára aldri lífið á hverjum degi.  Salernisskortur felur í sér heilbrigðisvá vegna þess að mannlegur úrgangur mengar drykkjarvatn og umhverfið með þeim afleiðingum að sjúkdómar á borð við kóleru, blóðkreppusótt og taugaveiki. 19.nóvember er Alþjóðlegi salernisdagurinn.

Af þessum sökum er það grafalvarlegt mál að 3.4 milljarðar manna hafa ekki aðgang að öruggri salernisaðstöðu eða næstum því helmingur heimsbyggðarinnar.

Alþjóðlegi salernisdagurinn er 19.nóvember.
Alþjóðlegi salernisdagurinn er 19.nóvember.

Að auki verða 354 milljónir manna í heiminum að gera sér að góðu að ganga örna sinna undir berum himni. Slíkt er olía á eld sjúkdóma og ýmiss konar skakkafalla, ekki síst fyrir konur og stúlkur. Staðreyndin er sú að það eru hinir fátækustu, og einkum konur og stúlkur í þeim hópi, sem verða verst úti vegna skorts á hreinlætisaðstöðu.

Alþjóðlegi salernisdagurinn: fjárfestinga er þörf

Flest bendir til að álagið á hreinlætisaðstöðu fari vaxandi á næstu árum. Um allan heim eru innviðir komnir til ára sinna. Fjárfestingar hafa ekki haldist í hendur við eftirspurn. Og loftlsagsbreytingar hafa breytt heimsmynd okkar. Jöklar bráðna, öfgaveður færist í vöxt og yfirborð sjávar hækkar. Af þeim sökum er mikilvægt að salerni og skolp standist flóð, þurrka og aðrar loftslagshamfarir.

Alþjóðlegi salernisdagurinn er 19.nóvember.
Alþjóðlegi salernisdagurinn er 19.nóvember.

Aðgangur að hreinlætisaðstöðu er mannréttindi – og grundvöllur að heilbrigði, mannsæmandi og frjóu lífi.

Ef allir jarðarbúar hefðu aðgang að öruggu salerni mætti bjarga þúsundum mannslífa árlega. Heimurinn tekur stöðugum breytingum en sumt breytist ekki og það á við um þörfina á salernum.

Alþjóðlegi salernisdagurinn, sjá einnig hér.