81.allsherjarþingið. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt tímamótayfirlýsingu um hækkun sjávarborðs þar sem segir að „uppsöfnuð, alvarleg og óafturkræf áhætta hennar krefjist sterkara alþjóðasamstarfs og brýnna, samræmdra aðgerða.“
Í yfirlýsingunni er lögð áhersla á nauðsyn þess að efla áhættuminnkun vegna hamfara og byggja upp viðnámsþrótt með bættu aðgengi að gögnum, áhættumati, viðvörunarkerfum fyrir vá og langtímaskipulagi og aðlögun.
„Hækkun sjávarborðs nær langt út fyrir umhverfið. Hún er ógnarmagnari sem hefur áhrif á hagkerfi, viðskipti, innviði og matvælakerfi,“ sagði António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
„Um 770 milljónir manna – næstum tíundi hluti mannkyns – búa í innan við fimm metra hæð yfir stórstraumsflóði. Fyrir þá skiptir hver sentimetri máli. Án verulegrar aðlögunar og mótvægisaðgerða er áætlað að áhættan sem strandborgir og samfélög standa frammi fyrir muni að minnsta kosti tífaldast fyrir árið 2100,“ sagði hann.
Hækkun sjávarborðs er einn af helstu loftslagsvísum sem Alþjóðaveðurfræðistofnunin (WMO) fylgist með.
11 cm hækkun frá 1993
Hlýnun sjávar og bráðnun íss valda langtímahækkuninni, sem hefur hraðað síðan gervihnattamælingar hófust árið 1993. Í lok árs 2025 var meðalstaða sjávarborðs á heimsvísu um 11 cm hærri en hún var í janúar 1993, samkvæmt skýrslu WMO um ástand loftslags á heimsvísu 2025.
„Við tökum með þakklæti eftir nauðsynlegri samræmingu á gögnum sem tengjast hækkun sjávarborðs og sem sérstofnanir SÞ hafa veitt, einkum Alþjóðaveðurfræðistofnunin og Milliríkjanefnd um haffræði UNESCO. Við köllum eftir bættum verkfærum til að tryggja samræmi og nýtingu gagna til að yfirstíga takmarkanir á getu,“ segir í yfirlýsingunni.
Þar er lýst yfir skuldbindingu um að efla samræmdar vísindalegar athuganir, gagnasöfnun og miðlun og styðja við Alþjóðlegt hafvöktunarkerfi og Alþjóðlegt sjávarborðsvöktunarkerfi.
WMO fagnar yfirlýsingunni.
„Að skilja hvernig sjávarborð breytist og hvað það þýðir á staðbundnum vettvangi veltur á viðvarandi athugunum – þar á meðal sjávarfallamælum, gervihnöttum, varma í hafi, breytingum á frosnu vatni og vatni á landi og mælingum á lóðréttri landhreyfingu, ásamt þeim veðurfræðilegu athugunum sem nauðsynlegar eru til að spá fyrir um storma og strandflóð,“ sagði í yfirlýsingu sem lögð var fram á háttsettum fundi.
Með viðurkenningu á því að hækkun sjávarborðs muni auka áhættu á strandsvæðum, þar á meðal stormflóð og strandflóð, undirstrikar yfirlýsingin mikilvægi fjárfestinga og viðbúnaðar til að byggja upp og viðhalda seigum samfélögum.
„Við munum efla fyrirbyggjandi aðgerðir, viðvörunarkerfi fyrir margþætta vá, loftslagsupplýsingakerfi og samþætta áhættumat vegna allra hætta í skipulags- og ákvarðanatökuramma eftir því sem við á,“ segir þar.
Yfirlýsingin var samþykkt með lófataki á háttsettum hluta 81. allsherjarþingsins þann 24. september eftir langar og strangar samningaviðræður.
