A-Ö Efnisyfirlit

Tími tækifæra: öld hreinnar orku

Grípum tækifærið skrifar Guterres í blaðagrein.
Grípum tækifærið skrifar Guterres í blaðagrein.

Hrein orka. Endurnýjanleg orka. Orkuskipti. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur skorið upp herör í þágu umskipta til hreinnar orku. Ný skýrsla sem kom út í dag sýnir fram á gríðarlegan ávinning af umskiptunum. Í ræðu í tilefni af útkomu skýrslunnar benti Guterres hins vegar á að þróunarríki eru að dragast aftur úr. Grein sama efnis birtist í ýmsum málsmetandi fjölmiðlum í dag og fylgir hér á eftir. 

Tími tækifæra: öld hreinnar orku, eftir António Guterres

Orka hefur mótað líf mannkynsins frá örófi alda. Fyrst tókst manninum að ná tökum á eldi, síðan gufuafli og loks kljúfa atómið. Í dag erum við stödd við dagsbrún nýrra tíma. Sólin er að rísa á öld hreinnar orku.

Guterres flytur ræðu í Al-Azhar íslamska háskólanum í Kairó.
Guterres flytur ræðu: Mynd: UN Photo/Mahmoud Abd ELLatiff

Á síðasta ári kom nærri öll ný viðbótar orka frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Fjárfestingar í hreinni orku náðu 2 trilljónum Bandaríkjadala, sem er 800 milljörðum meira en fjárfest var í jarðefnaeldsneyti.

Ódýrustu orkugjafar heims eru nú sól og vindur. Hreini orkugeirinn skapar störf, eflir hagvöxt og greiðir fyrir framförum þrátt fyrir að miklu meiri styrkir renni til jarðefnaeldsneytisgeirans.

Olía, gas og kol eru á meðal jarðefnaeldsneyta.
Olía, gas og kol eru á meðal jarðefnaeldsneyta. Mynd: Erik Mclean.

Ríki sem halda fast við jarðefnaeldsneyti eru ekki að vernda hagkerfi sín, heldur þvert á móti grafa undan þeim. Þau skerða samkeppnishæfni og missa af mesta efnahagslega tækifæri 21.aldarinnar.

Hrein orka stuðlar einnig að orku-sjálfstæði og öryggi. Jarðefnaeldsneyti er háð duttlungum markaðarins, röskun á framboði og uppnámi á alþjóðlegum vettvangi, eins og best sást þegar Rússland réðist inn í Úkraínu. Slíkar sveiflur verða ekki í sólarljósinu og ekkert stoppar vindinn. Nánast hver einasta þjóð býr yfir nægjanlegum endurnýjanlegum orkugjöfum til að vera sjálfri sér næg um orku.

Þar að auki glæðir hrein orka þróun. Hún getur náð til hundruða milljóna manna, sem eru án raforku, á skjótvirkan, ódýran og sjálfbæran hátt. Þar munar ekki síst um sólarorku utan raforkukerfa, og í smáum stíl.

COP27
Endurnýjanleg orka. Mynd: UNCLimagte

Af öllum þessum sökum er tímabil hreinnar orku óstöðvandi. En umbreytingin gerist hvorki nógu hrattt né nógu jafnt. Þróunarríki hafa verið skilin eftir.  Jarðefnaeldsneyti er enn í fyrirrúmi í orkukerfum þeirra, og losun er enn að aukast á sama tíma og draga verður úr henni til að koma í veg fyrir skæðustu loftslagshamfarirnar. Til þess að vinna bug á þessu, þarf aðgerðir á sex vígstöðvum.

G8: 80% losunar

Í fyrsta lagi ber ríkisstjórnum að helga sig framtíð hreinnar orku. Á næstu mánuðum ber öllum ríkjum að skila inn nýjum landsáætlunum, með markmiðum fyrir næsta áratug. Þessar áætlanir verða að draga dám af því að heildarhlýnun jarðar verði ekki meiri en 1.5 gráður á Celsius. Þeim ber að ná til allrar losunar og allra geira og marka braut í átt til hreinnar orku. G20 ríkin, sem bera ábyrgð á 80% losunar, verða að taka forystu.

Í öðru lagi þarf að byggja upp orkukerfi fyrir 21.öldina. Án nútíma raforkukerfa og geymslu, er ekki hægt að nýta endurnýjanlega orku að fullu. En fyrir hvern dal sem fjárfestur er í endurnýjanlegri orku renna aðeins 60 sent til raforkukerfa og geymslu. Þetta hlutfall ætti að vera jafnt.

Gagnaver
Gagnaver. Mynd: Dobecomputing-Creative Commons Attribution-Share Alike 4.0

Gagnaver munu nota álíka mikið og Japan

Í þriðja lagi ber ríkisstjórnum að stefna að því að mæta aukinni orkuþörf heimsins með endurnýjanlegri orku. Stóru tæknifyrirtækin þurfa að axla ábyrgð. Um 2030 kunna gagnaver að nota álíka mikið rafmagn og Japan í dag. Fyrirtækin ættu að skuldbinda sig til að nota endurnýjanlega orku.

Í fjórða lagi verður réttlæti að ríkja í orkuskiptunum. Í þessu felst að styðja ber samfélög, sem enn eru háð jarðefnaeldsneyti til að undirbúa framtíð hreinnar orku. Og það þýðir að endurskoða aðfangakeðjur þýðingarmikilla steinefna. Eins og staðan er nú einkennist þetta af mannréttindabrotum og umhverfisspjöllum. Þróunarríkin eru neðst í virðiskeðjunni. Þessu verður að ljúka.

Aðeins 2% fjárfestinga í Afríku

Í fimmta lagi þarf að nota viðskipti sem tæki í þágu orkuskiptanna. Aðfangakeðjur hreinnar orku eru samþjappaðar og heimsviðskipti sundruð. Ríki sem gengið hafa hreinni orku á hönd, verða að vinna að því að auka fjölbreytni í birgðum, lækka tolla á hreinnarorku-vörum, og aðlaga alþjóðlega fjárfestingasamninga að umskiptunum.

Aðeins 2% fjárfestingar í hreinni orku eru í Afríku..
Aðeins 2% fjárfestingar í hreinni orku eru í Afríku.. Mynd: Karel Prinsloo/Arete/UN Mozambique

Í sjötta og síðasta lagi þarf að beina fjármagni til þróunarríkja. Aðeins 2% fjárfestinga í endurnýjanlegri orku runnu til Afríku á síðasta ári, þótt þar sé 60% ákjósanlegustu svæða fyrir nýtingu sólarorku.

Afborganir tæmi ekki sjóði

Alþjóðlegra aðgerða er þörf til að koma í veg fyrir að afborganir af lánum tæmi sjóði þróunarríkja. Gera þarf fjölþjóðlegum þróunarbönkum kleift að auka ummtalsvert útlánagetu sína, og ná í meira einkafjármagn. Þá þurfa lánsmatshæfnifyrirtæki og fjárfestar að nútímavæða áhættumat sitt með því að taka tillit til fyrirheita hreinnar orku, kostnaðar við loftslagsglundroða og hættunnar á því að sitja uppi með eignir í jarðefnaeldsneytisiðnaði.

Sólarorka
Sólarorka.Mynd: American Public Power

Grípum tækifærið

Nýir tímar í orkumálum eru innan seilingar. Þá mun kappnóg, ódýr, hrein orka knýja heim mikilla efnahagslegra tækifæra. Ríki munu njóta þess öryggis, sem orku-sjálfræði veitir og blessun rafmagnsins mun blessa alla.

Þetta er okkar tækifæri til að ofurefla hnattræna breytingar. Grípum tækifærið.