Tíu tölur um tíu ára gamalt stríð

0
600

Borgarastríðið í Sýrlandi hefur nú staðið yfir í tíu ár. Milljónir barna hafa aldrei þekkt frið og stöðugleika. COVID-19 hefur svo bæst ofan á stríðsástandið.

Innviðir hafa verið eyðilagðir, efnahagurinn hrunið, hungur er viðvarandi og heilbrigðiskerfið er í lamasessi.

Hér eru tíu staðreyndir og tölur til að hafa í huga á 10 ára afmæli ófriðarins.

Tíu tölur

  1. Hundruð hjálparstarfsmanna hafa látið lífið eftir að hafa orðið fyrir barðinu á mannránum, skot- og sprengjuárásum. 264 hjálparstarsfmenn hafa verið drepnir í starfi sínu við að hjálpa íbúunum.
  2. Milljónir manna hafa orðið að flýja heimili sín og heimahéruð. Allt að 13 milljónir Sýrlendinga hafa flosnað upp og flúið til nágrannalanda, aðallega Tyrklands, Líbanons, og Jórdaníu.
  3. Enn fleiri reiða sig á aðstoð til að fullnægja frumþörfum sínum. Meir en 13 milljónir þurfa á neyðarástand að halda til að lifa af.
  4. Neyðarástandið hefur lagst þungt á börn á þessum slóðu. Margar ungar stúlkur hafa verið þvingaðar í hjónaband. Meir en 2.5 milljónir barna sækja ekki skóla í Sýrlandi.
  5. Sum börn hafa getað gengið í skóla en orðið fyrir barðinu á ofbeli. Þessi unga stúlka heitir Fatima. Hun missti fótleik í sprengjuárás og gengur til skóla á hækjum.
  6. Í mörgum fjölskyldum verða börn að vinna fyrir sér til þess að styðja fjölskyldur sínar. Sum vinna allt að 12 tíma á dag til að færa heimilinu matvæli.
  7. Margt eldra fólk horfir ekki fram á friðsælt ævikvöld. Umm Naser 74 ára (að neðan) hefur engan annan kost en að hírast ein í ísköldu og forugu tjaldi.
  8. Þess eru mörg dæmi að fólk hafi tekið munaðarleysingja í fóstur. Mohamad Hamad flosnaði upp frá heimili sínu, en elur önn fyrir 12 munaðarleysingjum. Hann elur líka önn fyrir sinni eigin fjölskyldu með aðstoð mannúðarsamtaka.
  9. Matvælaframleiðsla hefur víða lagst af vegna eyðileggingar styrjaldarinnar. Eina bakarí í Maadan í Raqq var endurreist með aðstoð Sameinuðu þjóðanna og bakar hvorki meire né minna en 2.9 tonn af brauði á dag.
  10. Þrautir margra eru linaðar þökk sé starfi mannúðarsamtaka sem ná til 7.6 milljóna í hverju mánuði.