
Alþjóða tölfræðidagurinn er haldinn hátíðlegur um allan heim í fyrsta skipti 20. október 2010 í því skyni að heiðra framúrskarandi framlag tölfræðinga í að taka saman og dreifa nauðsynlegum staðreyndum til að mæta nýjum áskorunum og marka framfarir í lífi fólks.
Ban Ki-moon lagði áherslu á mikilvægi tölfræði í stefnumótun á alþjóðavettangi. Hér sést hann við komu til Marokkó 17. október. SÞ-mynd: Eskender Debebe.
Tölfræði eru snar þáttur jafnt í lífi hverrar þjóðar sem og á alþjóðavettvangi, og liggur til grundvallar ákvarðanatöku. Alþjóðasamfélagið hefur nú viðurkennt mikilvægi tölfræðinnar með því að helga henni alþjóðlegan dag.
“Tölfræði er mikilvægt tæki í félagslegri og efnahagslegri þróun, þar á meðal í viðleitni okkar til að ná Þúsaldarmarkmiðunum um þróun. Ef þróun á að verða að veruleika þurfum við á tölulegum upplýsingum og túlkun að halda um fátæktarmörk, aðgang að menntun og tíðni sjúkdóma,” segir Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi í tilefni dagsins.

