Þrælahald tekur á sig nýja mynd

0
537
alt

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna varar við því að þrælahald viðgangist enn í heiminum, þrátt fyrir að þrælasala yfir Atlantshaf hafi verið upprætt á nítjándu öld.

altÓveðursský yfir flóttamannabúðum á Haití, þar sem þorri íbúa á rætur að rekja til þræla. Þrældómur hefur tekið á sig nýjar myndir. SÞ-mynd: Logan Abassi

Í ávarpi sínu á Alþjóða degi upprætingar þrælahalds, 2. desember 2010, segir framkvæmdastjórinn að þrælahald hafi tekið á sig ný lífsseig form: ánauð, skuldaþrældóm, þrælkunarvinnu, mansal kvenna og barna, heimilisþrældóm og þvingað vændi, kynferðisþældóm, þvinguð hjónabönd, barnavinnu – og þrælkun svo eitthvað sé nefnt.

”Af þessum sökum verður alþjóðasamfélagið að vera á varðbergi og efla viðleitni sína til að uppræta nútíma birtingarform þrælahalds. Draga ber þá til ábyrgðar sem iðka, samþykkja eða greiða fyrir því. Fórnarlömb og eftirlifendur eiga rétt á úrræðum og bótum,” segir framkvæmdastjórinn í ávarpi sínu.