Í norræna fréttabréfinu að þessu sinni beinum við kastljósinu að stöðu þróunarmála á Norðurlöndum, nú þegar umræður eru að hefjast um ný alþjóðleg þróunarmarkmið sem búist er við að hafi sjálfbærni að leiðarljósi. Þrátt fyrir kreppuna hafa norrænu ríkin haldið fast í rausnarleg framlög til þróunar og sum jafnvel bætt í. Almenningur styður framlögin þótt hann haldi að ástandið sé verra en það er. Við ræðum líka við Camillu Brückner, forstjóra UNDP á Norðurlöndum og loks lítum við á hvernig alþjóðastofnanir færa sér samskiptamiðla í nyt.

