18. september 2013. Nýr forseti Alllsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sagði að þingsins biði það verkefni að renna nýjum stoðum undir þróunarstarf í heiminum eftir 2015
en þá lýkur átaki sem kennt hefur verið við Þúsaldarmarkmiðin um þróun. 68.starfsár Allsherjarþingsins hófst í gær.
“Komandi ár mun skipta sköpum í starfi Allsherjarþingsins því okkur er ætlað að skilgreina markmið í þróunarstarfi eftir 2014,” sagði John W. Ashe, forseti 68. Allsherjarþingsins í ræðu sinni þegar þingið hóf störf. Tugir leiðtogar þjóða og ríksistjórnar munu stíga í ræðustól þingsins í næstu viku þegar almennar pólitískar umræður fara fram.
Árið 2015 markar lok Þúsaldarmarkmiðanna um þróun. Þau eru átta markmið í baráttu við fátækt sem leiðtogar heimsins komu sér saman um á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í tilefni aldamótanna 2000. Þau lúta að því að draga úr fátækt, bæta menntun, auka jafnrétti kynjannai, efla heilbrigði mæðra og barna, draga úr umhverfisspjöllum, fækka HIV/Alnæmissmitum og koma á fót samstarfi um þróunarmál á heimsvísu.
“Við munum tvíefla viðleitni okkar til að skilgreina markmiðin eftir 2015 í þróunarmálum, þar á meðal markmið í sjálfbærri þroun sem við vonumst til að muni takast á við flókin viðfangsefni okkar tíma og vekja athygli alheimsins rétt eins og Þúsaldarmarkmiðin gerðu,” sagði Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri samtakanna í ræðu sinni.
Ban tillkynnti að hann myndi kalla saman fund hátt settra leiðtoga til að ræða loftslagsbreytingar en tímasetning yrði ákveðin síðar.
Mynd: John Ashe, forseti 68. Allsherjarþingsins heilsar Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra SÞ, en Jan Eliasson, varaframkvæmdastjóri er lengst til hægri. SÞ-mynd/Eskender Debebe.

