Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, hefur lýst yfir áhyggjum af þeirri hættu á mannréttindabrotum sem fylgir fyrirhuguðum flutningi fólks frá fimm ríkjum Evrópusambandsins til Rúanda.
Türk bendir á að viðkomandi einstaklingar „hafi engin raunveruleg tengsl“ við Rúanda, „sem glímir sjálft við ýmsar áskoranir á sviði mannréttinda“.

Austurríki, Danmörk, Þýskaland, Grikkland og Holland hafa kynnt tillögu um „endursendingarmiðstöð“ í Rúanda. Hún snýr fyrst og fremst að hælisleitendum sem hefur verið synjað og öðrum farandmönnum sem eiga ekki lengur lagalegan rétt á að dvelja í ESB, en ekki að fólki sem enn bíður niðurstöðu í hælismálum sínum.
Í svari við fyrirspurnum fjölmiðla um tillöguna milli ríkjanna fimm í ESB og Rúanda sagði Türk:
„Lausnin felst ekki í stökum aðgerðum – sem oft eru mjög kostnaðarsamar – þar sem leitað er til fjarlægra landa til að sinna einum þætti í stjórnun fólksflutninga, né í því að útvista mannréttindaskuldbindingum.“
Ítarlegrar greiningar þörf
Mannréttindafulltrúinn kallaði eftir „ítarlegri greiningu á orsökum fólksflutninga“, sem hann sagði meðal annars fela í sér ýmsar áskoranir á sviði mannréttinda, gífurlegan ójöfnuð víða um heim, fjölgun vopnaðra átaka og aukna spennu í alþjóðastjórnmálum.
„Það þarf að takast á við þessa þætti af festu og einurð, meðal annars með fullnægjandi fjárfestingum sem taka á þessum orsökum og skapa raunhæf tækifæri í heimalandinu,“ sagði Türk.
Hann benti einnig á að samfélög á norðurhveli jarðar eldist hratt og glími við skort á vinnuafli á mikilvægum sviðum og við sjálfbærni „félagslegra verndarkerfa sinna.
Allt þetta kallar á heildstæða nálgun í stjórnun fólksflutninga sem byggir á mannréttindum, meðal annars með fjölgun löglegra leiða til fólksflutninga og viðurkenningu á því gríðarlega framlagi sem farandfólk leggur til evrópskra samfélaga og hagkerfa,“ sagði mannréttindafulltrúinn í yfirlýsingu.
