A-Ö Efnisyfirlit

Úkraína: Fólk á flótta á undir högg að sækja

Ung stúlka sækir eldivið.
Ung stúlka sækir eldivið. Mynd: © UNICEF/Dmytrii Bortkevych

Allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu hefur brátt staðið yfir í á fimmta ár. Eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna segja að óbreyttir borgarar verði sífellt meira fyrir barðinu á átökunum. Árásir Rússa á orkuveitur á sama tíma og fimbulvetur ríki koma niður á almenningi og standa í vegi fyrir því að fólk á flótta snúi heim á ný.

„Fleiri eru drepnir eða særðir á hverju árinu sem líður,“ segir Danielle Bell, yfirmaður mannréttindaeftirlits Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu (HRMMU). „Hundruð þúsunda þjást án húshitunar í brunakulda.“

Þann 24. febrúar 2026 verða fjögur ár liðin frá upphafi allsherjarinnrásarinnar. Mannfall á meðal óbreyttra borgara var 31% meira 2025 en fyrra ár, 2024, og 70% meira en 2023. Fimmtán þúsund óbreyttir borgarar hafa látist frá upphafi innrásarinnar.

Þessi þróun hefur haldið áfram það sem af er ársins 2026 segir í skýrslu HRMMU.

Kona virðist fyrir sér eyðileggingu á heimili sínu í Mykolaiv í suðurhluta Úkraínu.
Kona virðist fyrir sér eyðileggingu á heimili sínu í Mykolaiv í suðurhluta Úkraínu. Mynd: © UNOCHA/Yurii Veres

Allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu: Pyntingar, aftökur og kynferðislegt ofbeldi

„Gróf brot á alþjóðlegum mannúðarlögum hafa haldið áfram refsilaust, sérstaklega af hálfu rússneskra yfirvalda,“ segir eftirlitssveitin.

Á meðal brota má nefna umfangsmikla og kerfisbundna notkun pyntinga og slæmrar meðferðar á úkraínskum stríðsföngum og almennum borgurum, auk kynferðisbrota og aftaka. Í skýrslu HRMMU segir enn fremur að aftökum handtekinna úkraínskra hermanna hafi fjölgað í nóvember og desember 2025.

„Við höfum nánast ekki frétt af neinum tilraunum til að hindra slíkt ofbeldi eða draga gerendur til ábyrgðar,“ sagði Bell. „Fórnarlömb verða að eiga rétt á úrræðum: aðgangi að réttlæti, bótum fyrir skaða sem þau hafa orðið fyrir og að fá að vita sannleikann varðandi þessi brot.”

Úkraína eftir loftárás
Kyiv eftir loftárás. Mynd: Human Rights Monitoring Mission in Ukraine/Anastasiia Honcharuk

Árásir á orkuver auka á vanda uppflosnaðs fólks

Áframhaldandi árásir á innviði orkukerfisins hafa komið hart niður á milljónum íbúa þegar frost er allt að -20°C.

4,4 milljónir manna hafa snúið aftur eftir að hafa flúið að heiman. Þessi straumur hefur stöðvast yfir vetrarmánuðina. 3,7 milljónir eru enn á flótta frá heimilum sínum en dvelja innanlands í Úkraínu að sögn Fólksflutningastofnunar Sameinuðu þjóðanna (IOM).

„400 þúsund flóttamenn hafa snúið til baka úr útlegð utan landsteinanna en hafa ekki getað snúið aftur til heimila sinna.

Í skýrslu IOM segir að allt að 300 þúsund þeirra sem snúið hafa aftur telji sig þurfa að flytja sig enn um set á næstu þremur mánuðum.

„Fjórum árum eftir allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu hafa fjölskyldur ekki lengur burði til að þrauka enn einn rafmagnslausan vetur í frosti og kulda,“ segir forstjóri IOM, Amy Pope.