Úkraína: gæti orðið mesti flóttamannastraumur aldarinnar

0
727

Sameinuðu þjóðirnar og aðrar hjálparstofnanir hafa í sameiningu farið fram á 1.7 milljarða dala fjárveitingar í þágu Úkraínu. Þessu fé verður til nauðstaddra í Úkraínu og flóttamanna þaðan í nágrannalöndunum. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna óttast mesta flóttamannastraum aldarinnar í Evrópu frá Úkraínu.

Sameinuðu þjóðirnar telja að 12 milljónir manna þurfi á skjóli og vernd að halda innan Úkraínu. Þá kunni að þurfa að aðstoða allt að fjórar miljónir flóttamanna í nágrannaríkjunum.

Birgðaflutningar og grunnþjónusta hefur raskast í Úkraínu þar sem bardagar hafa brotist út.

„Fjölskyldur með ung börn haldast við neðanjarðar í kjöllurum eða jarðlestastöðum,“ segir Martin Griffiths yfirmaður mannúðaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna. „Fólk hleypur skelfingu lostið til að bjarga lífi sínu á meðan sírenur væla og ærandi sprengingar heyrast. Þetta er dimmasta stund úkraínsku þjóðarinnar. Við verðum að svara með samúð og samstöðu.“

Aðstoð við 6 milljónir í fyrstu

Fyrsta stig ætlunar hjálparstarfs felur í sér að afla 1.1 milljarðs dala til að hjálpa 6 milljónum manna í Úkráinu í þrjá mánuði til að byrja með.

Gert er ráð fyrir fjárstuðningi þeirra asem minnst mega sín og útvega mat, vatn og hreinlætisaðastöðu. Þá verður stutt við bakið á fólki til að tryggja heilsugæslu og kennslu. Þá verða byggð skýli í stað eyðilagðra bygginga.

Þá verður yfirvöldum veitt aðstöð við að koma á fót miðstöðvum til að greiða götu fólks sem flosnað hefur upp og til að hindra kynferðislegt ofbeldi.

Aðstoð við flóttamenn

Nú hefur meir en hálf milljón manna flúið Úkraínu til nágrannaríkja á aðeins fimm dögum. Búist er við að flóttamannastraumurinn aukist. Því er nauðsynlegur stuðningur til að sinna brýnustu þörfum fólks sem leitar verndar utan landsteinanna..

„Við stöndum frammi fyrir því sem gæti orðið mesti flóttamannastraumur í Evrópu á þessari öld. Aðstoð fólks í nágrannaríkjunum er þung á metunum en meira þarf til að hjálpa og vernda þá sem eru nýkomnir,“ segir Filippo Grandi forstjóri Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjoðanna.

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna benti á að átökin í Úkraínu gætu haft keðjuverkun i för með sér.

„Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna kaupir meir en helming hveitis síns í Úkraínu. Ef uppskeran raskast gæti það valdið verðhækkun og aukið á hungur í heiminum.“